spot_img
HomeFréttirÁríðandi tilkynning: Sprengjuefni fannst nálægt Njarðtaks Gryfjunni - Leikurinn á settum tíma

Áríðandi tilkynning: Sprengjuefni fannst nálægt Njarðtaks Gryfjunni – Leikurinn á settum tíma

Viðureign Njarðvíkur og Stjörnunnar í Domino´s-deild karla mun fara fram í kvöld á tilsettum tíma kl. 20.15. Fyrr í dag þurfti lögreglan á Suðurnesjum þarf að grípa til rýmingaraðgerða vegna gamals sprengiefnis sem fannst í gámi á iðnaðarsvæði við íbúðarhverfi í Njarðvík. Rýming þessi er öryggisráðstöfun til að tryggja öryggi íbúa sem búa á nálægum svæðum.

Nánar á vef Víkurfrétta

Af þessum ástæðum gætu verið lokanir á svæðum eins og bílastæðum í grennd við Njarðtaks-gryfjuna. Í kvöld verður gengið inn á leikinn um kjallara að sunnanverðu húsinu. Njarðvíkingar eru hvattir til þess að nýta góða veðrið og ganga á leikinn þeir sem geta en stuðningsmenn Stjörnunnar eru beðnir um að hafa í huga að mögulega verður ekki hægt að leggja bifreiðum í námunda við keppnishúsið.


Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda en stjórn KKD UMFN og starfsfólk í Njarðtaks-gryfjunni mun gera sitt besta til þess að tryggja öruggt og gott aðgengi allra að leiknum.

Fréttir
- Auglýsing -