HomeFréttirÁrgangamót Vals á morgun

Árgangamót Vals á morgun

Á morgun, laugardaginn 27. október fer fram árlegt árgangamót Vals í Vodafonehöllinni að Hlíðarenda.  Mótið hefst klukkan 17:00 og er öllum gömlum sem nýjum völsurum boðið að mæta og skrá sig á staðnum.  Valsmenn héldu árgangamótið í fyrsta skiptið í nokkurn tíma á síðasta ári og þótti það takast einstaklega vel.  Mátti þar sjá fyrrverandi landsliðsmenn sýna gamla takta gegn yngri og “ferskari” leikmönnum.  Búist er við góðri mætingu og eru því allir Valsarar hvattir til þess að mæta og taka þátt.  Þáttökugjald er 2500 kr sem greiddar eru á staðnum. 
Áætlað er að mótið standi til klukkan 20:00
 
Fréttir
- Auglýsing -