Síðustu daga hefur notandi á Twitter sem kallar sig Basket Apa (@BasketApa) verið að nefna 100 bestu leikmennina í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta. Efsta sætið var að detta í hús og segir ,,apinn" Jakob Örn Sigurðarson vera besta leikmann deildarinnar. Eftir því sem við á Karfan.is komumst næst ku Basket Apa vera hópur sænskra sérfræðinga og því um aldeilis myndarlega nafnbót að ræða hjá Jakobi.
Íslendingar eiga þrjá leikmenn í deildinni þetta tímabilið, þá Jakob Örn og Hlyn Bæringsson hjá Sundsvall Dragons og svo Pavel Ermolinski hjá Norrköping Dolphins.
Ekki amalegt veganesti inn í veturinn hjá Jakobi en 7. sæti var Hlynur Bæringsson og í því áttunda var Pavel svo þessir þrír íslensku landsliðsmenn eru af ,,apanum" taldir á meðal tíu bestu leikmanna Svíþjóðar. Apinn títtnefndi titlar sig sem körfuboltanjörð og vísar á síðuna: www.basketsnack.com




