Í kvöld lýkur annarri umferð í Domino´s deild karla en þá eru þrír leikir á dagskránni sem allir hefjast kl. 19:15. Suðurnesjarimma verður í Toyota-höllinni, Snæfell fær ÍR í heimsókn og silfurlið Þórs úr Þorlákshöfn tekur á móti Njarðvík.
Leikir kvöldsins, kl. 19:15
Keflavík-Grindavík
Snæfell-ÍR
Þór Þorlákshöfn-ÍR
Í gær hófst keppnin í Domino´s deild karla þar sem Fjölnir, KFÍ og Stjarnan nældu sér í tvö góð stig. Fjölnir lagði KR, KFÍ lagði Skallagrím eftir framlengingu og Stjarnan vann Tindastól í Skagafirði.
Staðan í deildinni
| Deildarkeppni | |||
| Nr. | Lið | U/T | Stig |
|---|---|---|---|
| 1. | Stjarnan | 1/0 | 2 |
| 2. | Fjölnir | 1/0 | 2 |
| 3. | KFÍ | 1/0 | 2 |
| 4. | Skallagrímur | 0/1 | 0 |
| 5. | KR | 0/1 | 0 |
| 6. | Tindastóll | 0/1 | 0 |
| 7. | Keflavík | 0/0 | 0 |
| 8. | Grindavík | 0/0 | 0 |
| 9. | ÍR | 0/0 | 0 |
| 10. | Snæfell | 0/0 | 0 |
| 11. | Þór Þ. | 0/0 | 0 |
| 12. | Njarðvík | 0/0 | 0 |





