spot_img
HomeFréttirAmaechi kemur ?út úr skápnum"

Amaechi kemur ?út úr skápnum”

13:54 

{mosimage}

 

(Amaechi í leik í NBA deildinni)

 

 

Ævisaga John Amaechi, fyrrum leikmanns í NBA-deildinni í körfuknattleik, kemur út þann 14. febrúar n.k. og í bókinni segir Amaechi m.a. frá því að hann sé samkynhneigður.

Amaechi er sá fyrsti úr röðum NBA-leikmanna sem greinir opinberlega frá samkynhneigð sinni en aðeins er vitað til þess að fimm aðrir atvinnuíþróttamenn úr stærstu atvinnumannadeildum í Bandaríkjunum hafi greint frá samkynhneigð sinni opinberlega.

 

Amaechi hætti að leika í NBA-deildinni fyrir þremur árum en hann var á mála hjá fimm liðum á þeim fjórum árum sem hann var atvinnumaður í NBA.

Í bók sinni, „Man in the Middle“, sem kemur út þann 14. febrúar greinir Amaechi frá ýmsum atriðum einkalífs síns.

 

Tenniskonan Martina Navratilova fagnaði því að Amaechi skyldi koma „út úr skápnum“ en hún gerði slíkt hið sama fyrir fjölmörgum árum. „Það er mikilvægt að börn og unglingar sjái að þau eru ekki ein í heiminum. Við sem erum samkynhneigð getum einnig verið góðar fyrirmyndir og ég er viss um að mörgum líður betur að vita af okkur í íþróttunum,“ sagði Navratilova er hún frétti af útkomu bókar Amaechi.

 

Grant Hill leikmaður Orlando Magic lék með Amaechi á sínum tíma og segir Hill að hann sé ánægður með ákvörðun Amaechi. „Amaechi mun eflaust vera hvatning fyrir aðra. Hvort það sem þeir eru leikmenn í dag eða ekki,“ sagði Hill.

 

David Stern framkvæmdastjóri NBA-deildarinnar segir að kynhneigð leikmanna skipti engu máli í NBA-deildinni. „Eina spurningin sem við viljum fá svör við í deildinni er sú hvort leikmenn geti eitthvað í körfubolta. Annað skiptir ekki máli,“ sagði Stern.

 

Frétt af www.mbl.is

Fréttir
- Auglýsing -