15:40
{mosimage}
Stjarnan og Valur eigast við í kvöld klukkan 19:15 í Ásgarði í öðrum leik liðanna um laust sæti í Iceland Expressdeild karla að ári. Liðin áttust við á laugardag í Kennaraháskólanum í miklum spennuleik þar sem Valsmenn fóru með sigur af hólmi 80-77.
Valur sigraði í báðum leikjum liðanna í deildinni í vetur svo ljóst er að brattan verður að sækja fyrir Garðbæinga en leið þeirra hefur einungis legið upp á við frá áramótum.
Mynd: Jón Björn Ólafsson / karfan.is