spot_img
HomeFréttirAli Ford í Hamar

Ali Ford í Hamar

Hamarskonur í Domino´s-deildinni hafa samið við nýjan erlendan leikmann en sú heitir Ali Ford og lék með Elon háskólanum í Bandaríkjunum. Ford mun taka við af Suriya McGuire í Hveragerði sem var látin taka poka sinn.

Oddur Benediktsson þjálfari Hamarskvenna staðfesti þessi tíðindi við Karfan.is sem og að Ford yrði ekki með Hamri í kvöld gegn Haukum en hann vonaðist til að nýji leikmaðurinn yrði klár í slaginn fyrir bikarleikinn gegn Stjörnunni. 

Mynd/ Ford í leik með Elon háskólanum. 

Fréttir
- Auglýsing -