spot_img
HomeFréttirÁgúst: Tel að munurinn hafi legið í breiddinni

Ágúst: Tel að munurinn hafi legið í breiddinni

Valskonur snéru blaðinu við í dag eftir slaka byrjun í Domino´s deild kvenna er þær skelltu stöllum sínum úr KR í lokaleik annarar umferðar Domino´s deildar kvenna. Lokatölur í Vodafonehöllinni voru 70-45 Val í vil þar sem Unnur Lára Ásgeirsdóttir heldur áfram að láta að sér kveða. Við ræddum við Ágúst Björgvinsson þjálfara Vals eftir sigurinn í dag.
,,Vörnin var að smella vel saman hjá okkur í dag og í fyrri hálfleik skora KR 18 stig og 6 þeirra komu á fyrstu mínútu leiksins. Með þessari góðu vörn komu margar auðveldar körfur. Ég tel að munurinn hafi aðallega legið í breiddinni. Þegar við komum með fyrstu skiptinu var staðan 11-8 og það kom enn meiri kraftur í okkar lið og á aðeins tveimur mínútum breyttum við stöðunni í 22-8," sagði Ágúst sem er þó raunsær.
 
,,Við erum eins og flest lið á haustin, mikið sem þarf að vinna í sem þarf að fá sinn tíma og við höfum skilning á því og þolinmæðin er til staðar. Það er bara einn dagur í einu, tvær æfingar og svo næsti leikur gegn Fjölni sem við þurfum að mæta tilbúin í."
 
 
Staðan í deildinni
Deildarkeppni
Nr. Lið U/T Stig
1. Keflavík 2/0 4
2. Snæfell 2/0 4
3. Valur 1/1 2
4. Haukar 1/1 2
5. Njarðvík 1/1 2
6. KR 1/1 2
7. Fjölnir 0/2 0
8. Grindavík 0/2 0
 
Fréttir
- Auglýsing -