HomeFréttirÁgúst: Enginn dauðadómur að falla í 1. deild

Ágúst: Enginn dauðadómur að falla í 1. deild

 
Hamarsmenn í Hveragerði luku keppni á fimmtudagskvöld í úrvalsdeild þetta tímablið en liðið er fallið og leikur í 1. deildinni á næstu leiktíð. Hamar fellur með 14 stig eða 7 sigurleiki og eru það ansi mögnuð skilaboð til þeirra liða sem nú berjast í úrslitakeppni 1. deildar. Þið sem eruð á leið upp í Iceland Express deildina verðið líklegast að vinna eitthvað í kringum 7 deildarleiki til að eiga möguleika á áframhaldandi veru meðal þeirra bestu. Við ræddum við Ágúst Björgvinsson þjálfara Hamars á fimmtudagskvöld sem stýrði Hamri til sigurs gegn Stjörnunni og það án erlendra leikmanna en Devin Sweetney fór af landi brott skömmu fyrir leikinn gegn Stjörnunni þar sem hann hafði tryggt sér leikmannasamning í Lettlandi.
,,Devin Sweetney fékk samning í Lettlandi og fór bara á fimmtudag og við höfðum enga ástæðu til að standa í hans vegi og þá var Lárus Jónsson ekki heldur með okkur,“ sagði Ágúst en Hamar lagði Stjörnuna 74-65 í Hveragerði.
 
,,Það var gott fyrir sálina að klára tímabilið með sigri en það voru ansi margir svona leikir sem við náðum ekki að klára á síðustu sekúndunum í vetur og það hrjáði okkur að vera ekki að vinna réttu leikina. Við unnum þessi topplið fyrir áramót en það hefði gefið okkur meira að hafa haft t.d. betur innbyrðis gegn Fjölni,“ sagði Ágúst sem fellur með 14 stig í 1. deild.
 
,,Við vorum með 14 stig líka í fyrra og rétt misstum af úrslitakeppninni en við hefðum einfaldlega þurft í vetur að hafa staðið okkur á móti liðum eins og Fjölni og Haukum,“ sagði Ágúst og kvað sína menn hafa viljað kveðja deildina með reisn.
 
,,Eftir Snæfellsleikinn var vitað að við vorum fallnir, við tókum bara nokkuð brattar æfingar eftir það og vildum fara út með reisn. Það var frábær barátta í mínum leikmönnum gegn Stjörnunni og við lékum fína vörn í allan vetur enda ekki mikið skorað hjá okkur. Það vantaði bara fleiri leikmenn sem gátu tekið af skarið og skorað. Það vantaði ekki menn sem voru tilbúnir til að spila vörn og berjast, það var alveg til fyrirmyndar,“ sagði Ágúst en Hamarsmenn stefndu allt tímabilið á úrslitakeppnina.
 
,,Við ætluðum að gera betur en í fyrra, við ætluðum í úrslitakeppnina og ég held að það séu fá lið sem spila jafn marga jafna leiki og við gerðum í vetur. Flestir leikirnir okkar voru mjög jafnir en það er enginn dauðadómur að fara í 1. deild,“ sagði Ágúst og benti á nokkra leikmenn eins og Odd Ólafsson og Ragnar Natahanaelsson sem báðir fengu góða reynslu í 1. deildinni.
Mynd/ Úr safni[email protected]
 
Fréttir
- Auglýsing -