HomeFréttirÁgúst Björgvinsson: Erum klárlega betra liðið

Ágúst Björgvinsson: Erum klárlega betra liðið

 Ágúst Björgvinsson hefur stýrt Valsmönnum til sigurs í fyrstu tveimur umferðum fyrstu deildar og var nokkuð ánægður með það eftir sigur gegn Breiðablik í Vodafonehöllinni í gærkvöldi.  Ágúst var þó ekki ánægður með allt í leik liðsins þó það hafi spilað virkilega vel á köflum.  
 

“Við spiluðum náttúrulega rosalega vel þarna á 10 mínútna  kafla í fyrri hálfleik en svona síðustu 5 mínúturnar í seinni hálfleik var þetta svolítið kæruleysi hjá okkur.  Á meðan við vorum á fullu gasi og að spila eins vel og við getum vorum við klárlega betra liðið.  En við duttum niður í eitthvað kæruleysi”.  

 

Eftir virkilega góðan fyrri hálfleik þar sem sóknarleikur Breiðabliks var nánast ekki til staðar tókst gestunum að snúa blaðinu all hressilega við og skoruðu fleiri stig í fjórða leikhluta heldur en fyrri hálfleik sem dæmi.  Það má því segja að fyrri og seinni hálfleikur hafi verið algjörar andstæður.  

“Við spiluðum nokkuð vel á köflum, hvert hraðaupphlaupið á fætur öðru og góð vörn.  En við áttum í vandræðum með fráköst í dag.  Miðað við hvað við erum með góða frákastara í okkar liði þá vorum við ekki að frákasta vel.  Sóknarleikurinn okkar var engan vegin nógu góður, þeir spila þessa svæðisvörn á okkur og við náum ekki að nýta okkur þessar glufur.  Við náðum reyndar oft opnum skotum en náðum ekki að nýta okkur það eins vel og við ættum að gera” 

 

4 stig eftir fyrstu tvo leikina hlýtur þó að vera gleðiefni. 

“Fyrsta heimaleikur og 2 stig úr honum, við erum ánægðir með það”.  

 

[email protected]

mynd: [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -