HomeFréttirÁgúst Björgvins: Var að þjálfa hérna síðast þegar liðið vann 2003

Ágúst Björgvins: Var að þjálfa hérna síðast þegar liðið vann 2003

 Þegar undirritaður ætlar að spyrja Ágúst hvernig tilfinningin væri eftir fyrsta sigur Vals í efstu deild eftir þónokkur ár var hann ekki lengi að henda fram ártalinu.
“fyrsti sigurinn í 10 ár.  Hun er bara mjög góð, ég var þjálfari hérna síðast þegar liðið vann árið 2003, þannig að það er ótrúlega gaman að vera hérna aftur tíu árum seinna.  Ég ætla að vona að það verði ekki tíu ár í næsta, en það verður ekki tíu ár í næsta sigur með svona baráttu”. 
 Þessi sigur hlítur að skrifast á ótrúlega baráttu í liðinu miðað við þessa tölfræði í fráköstunum. 

“Rosa barátta, Biggi að spila rosalega vel í dag.  Chris Woods er að spila ótrúlega vel líka, hann er að taka 24 fráköst og er samt ekki með flest fráköstin í leiknum, Biggi með 25.  Í raun ótrúleg tölfræði líka að Woods er með 13 sóknarfráköst en ekki eitt vítaskot í leiknum.  Margir að stíga upp og margir að eiga góðan leik, það er gleðiefni að það eru aðrir en í síðasta leik.  Rúnar var frábær í síðasta leik.  Við erum að sýna það að eins og í 1. deildinni í fyrra að það er breidd í liðinu, við erum ekki með neina stjörnu en við erum með fullt af strákum sem geta spilað.  Við teljum okkur eiga að vera í þessari deild”.  

Valsmenn voru ekki langt frá því að stela sigrinum gegn ÍR í seinustu umferð og því spurning hvort þetta sé einfaldlega stígandi í liði Vals þessa dagana?

“Mikill stígandi í þessu.  Við förum í gegnum rosalega erfitt undirbúningstímabil, spilum mikið af leikjum á stuttum tíma og það fór kannski svolítið með sjálfstraustið hjá sumum.  Núna erum við að spila einn leik á viku og það er mikill munur á þessu milli leikja.  Síðasti leikur flottur hjá okkur sóknarlega en skelfilegur varnarlega.  Við vinnum þennan leik á baráttu”. 

[email protected] 
mynd:  [email protected] 

Fréttir
- Auglýsing -