Afturelding hóf tímabilið í 2. deild á sigri þegar liðið lagði Fylki að velli í Árbæjarhöll, 102–91. Um langþráðan sigur var að ræða en Mosfellingar höfðu tapað síðustu fjórum viðureignum liðanna á liðnum tveimur árum.
Jafnræði var með liðunum framan af og leiddu gestirnir með þremur stigum í leikhléi, 45–42. Afturelding gerði hins vegar áhlaup í þriðja leikhluta sem liðið vann með 16 stiga mun, 37–21, og sigldi mikilvægum útisigri í höfn.




