spot_img
HomeFréttirÆfingamót U20 hefst í Höllinni í dag

Æfingamót U20 hefst í Höllinni í dag

Í dag hefst æfingamót U20 ára landsliðs Íslands í Laugardalshöll. Um er að ræða þrjá leiki á næstu þremur dögum þar sem Ísrael, Finnland og Svíþjóð eru í heimsókn. Leikirnir hefjast í kvöld kl. 17:00 þegar Ísrael og Finnland eigast við og kl. 20:00 mætast Svíþjóð og Ísland.

Miðasala er við innganginn, verð fyrir daginn er kr. 1500 en miðaverð á alla leikina er kr. 3000. Allir leikirnir verða sýndir í beinni á Sporttv.is

Leikjadagskráin

19. júní
17:00 Ísrael – Finnland
20:00 Ísland – Svíþjóð

20. júní
17:00 Finnland – Svíþjóð
20:00 Ísland – Ísrael

21. júní
17:00 Svíþjóð – Ísrael
20:00 Ísland – Finnland

#ÁframÍsland

Fréttir
- Auglýsing -