Eins og gefur að skilja vöktu slagsmálin að Ásvöllum í gærkvöldi mikla athygli en þetta var annar leikurinn í röð í Hafnarfirði þar sem smurt hefur verið í hnefasamloku. Á miðvikudagskvöld var Margréti Köru Sturludóttur hent út að Ásvöllum fyrir að slá til leikmanns Hauka og kannski við hæfi að spyrja hvort rauði liturinn á veggjunum í húsinu fái leikmenn til þess að haga sér eins og naut í flagi, eða þá og hitt sem er líklegra að það hafi verið fyrir tilviljun eina sem þessi tvö atvik komu upp í jafn mörgum leikjum á þessum ágæta heimavelli Hafnfirðinga. Reyndar er þetta ekki til umræðu hér heldur framtíðarstefna á stafrænum tímum.
Vel flest úrvalsdeildarlið í körfuknattleik taka upp leikina sína og sum þeirra sýna heimaleiki sína í beinum netútsendingum. Að þessu sögðu er því nokkuð almenn vitneskja um að bæði ofantalin leiðindamál að Ásvöllum eru til á myndbandsupptöku. Frumstæðar hvatir okkar mannanna vilja vitaskuld að bæði þessi atvik verði sett á netið svo hægt verði að karpa um málin á Facebook og Twitter og hamra aðeins á járninu á meðan það er heitt.
Á fyrstu starfsárum Karfan.is var þetta einnig raunveruleikinn, þ.e. liðin í körfunni voru að taka upp sína leiki og oftar en ekki bárust okkur á Karfan.is videobrot þar sem hinn eða þessi steig á línununa og ,,þetta hefði klárlega verði tvistur en ekki þristur.“ Svona leiðindamyndbrot fóru allt í einu að berast okkur í stríðum straumum, þau sem við birtum ollu margfeldisáhrifum og skyndilega var maður vaðandi í leiðindamyndbrotum þar sem ,,einhver þjálfarinn átti að hafa verið að tala við sinn eigin leikmann en ekki dómarann þegar hann fékk tæknivíti“ – allt á þessum nótum.
Við á Karfan.is töldum myndbirtingar af þessu tagi íþróttinni ekki til framdráttar og síst þá heldur að vera oft staddir í einhverju saurbaði með þolendum og gerendum á viðkomandi myndbrotum. Við ákváðum því að slaufa birtingum á þessum myndum.
Nú þegar hnefasamloka fauk í Iceland Express deild kvenna og meint hópslagsmál áttu sér stað í Iceland Express deild karla er nokkuð athyglisverð staða komin upp. Ætlar körfuknattleikshreyfingin að taka svipaðan pól í hæðina og gert er í NBA deildinni? Þar eru slagsmál ekki sýnd, þau detta vissulega inn á Youtube þegar einhver netverjinn hefur náð að koma þeim á stafrænt form og þar eru áhorfstölurnar ekkert slor. Mest lesna fréttin á Karfan.is í gær var þessi: Hasar á Ásvöllum, 8 reknir út
Nú hef ég undir höndum staðfestingu á því frá formanni Hauka að hann og stjórn KKD Hauka séu alfarið gegn því að sýna opinberlega þessar óíþróttamannslegu uppákomur að Ásvöllum því hann og stjórnin telji þær körfuboltanum ekki til framdráttar. Haukarnir velja að fara NBA leiðina en samkvæmt mínum heimildum hafa fréttastofur RÚV og Stöðvar 2 beðið um að fá þessi atvik til birtingar, veri þær heimildir réttar eða rangar?
Óumdeilt er að svona uppákomur eru á fréttastofunum kallaðar ,,hörkufréttir“ – fá mikla athygli og fólk getur smjattað á svona hlutum þangað til það verður fjólublátt og þarf að fara í endajaxlatöku eftir að hafa rætt þetta niður í míkróbrot. Þetta er aukaatriði, aðalatriði í þessu efni, að frátöldum væntanlegum dómum Aga- og úrskurðarnefndar KKÍ, er tvennskonar. Annarsvegar verður refsinging að hæfa glæpnum og allir að sammælast um að vinna virkilega að því að svona hlutir endurtaki sig ekki. Hinsvegar hvernig þessum gögnum, þ.e. myndbandsupptökunum, verði ráðstafað.
–Birtum við bara troðslur, varin skot og einhver skemmtilegheit?
–Á að sópa öllu ósæmilegu undir teppið íþróttinni til framdráttar?
–Á að birta óíþróttamannslegar uppákomur eins og þær sem rætt er hér um sem öðrum víti til varnaðar?
–Ættu deildir eins og t.d. NBA deildin og þeirra starfsaðferðir að vera eitthvert viðmið í svona máli?
–Hvar liggur rétturinn? Í þessu tilfelli, er Haukar TV heimilt að sýna þessi myndbrot t.d. á Youtube þar sem KKÍ óumdeilt á sýningarréttinn að Iceland Express deildunum. Þyrfti þá leyfi frá KKÍ til að birta viðlíka myndbrot eða er þetta alfarið ákvörðun Hauka að birta ekki slagsmálin án samráðs við KKÍ?
–Hver er framtíðarstefna netútsendingarstjóranna okkar sem, af mikilli óeigingirni, halda úti beinum netútsendingum frá leikjum sinna liða. Munu Haukar TV velja að sýna ekki svona uppákomur en t.d. KR TV ákveða að sýna allar svona uppákomur?
Fyrsta og erfiðasta spurningin er auðvitað þessi: Hver er tilgangurinn með því að sýna slagsmál? Ég tel, þrátt fyrir að halda úti vefsíðu þar sem gaman er að monta sig af einhverjum lestrartölum, að aðgát beri að hafa í nærveru sálar og þeir sem hafi misst stjórn á skapi sínu og gerst brotlegir við reglur leiksins hafi ekki gaman af því að sjá hundruðir manna velta sér upp úr heimskupörum sínum.
Það er því ekki úr vegi að netútsendingastjórar komi sér upp framtíðarstefnu í þessum efnum en þeir geta hengt sig á eina staðreynd… ef RÚV og Stöð 2 hefðu verið á staðnum þá hefðu þessi atvik ratað í fréttatímann, það getið þið stólað á!
Jón Björn Ólafsson
Ritstjóri Karfan.is





