spot_img
HomeLandsliðinEuroBasket 2021A landslið kvenna fær undanþágu til æfinga - Halda til Grikklands á...

A landslið kvenna fær undanþágu til æfinga – Halda til Grikklands á sunnudag

Íslenska kvennalandsliðið heldur af landi brott á sunnudag til þess að leika tvo leiki í undankeppni EuroBasket 2021 í Grikklandi.

Leikirnir fara fram í landsliðsglugga FIBA dagana 8.-15. nóvember og verða leiknir á Grikklandi í Heraklion á eyjunni Krít í öruggri „bubblu“ sem FIBA setur upp fyrir öll liðin í A-riðli undankeppninnar. Farið verður eftir ströngum reglum innan hennar með sóttvarnir. Leikirnir í undankeppninni hjá öllum liðum í nóvember áttu að vera heima og að heiman en hefur nú verið breytt fyrir alla riðla í einangraða leikstaði, líkt og NBA-deildinn vestanhafs gerði á Florída nú í haust.

Leikdagar verða  fimmtudaginn 12.nóvember og  laugardaginn 14. nóvember. Báðir leikirnir kl.15.00 að íslenskum tíma og í beinni útsendingu á RÚV. Fyrri leikurinn er gegn Slóveníu og sá seinni gegn Búlgaríu.

Líkt og allir vita er æfingabann á Íslandi þessa stundina, en í gær fékk liðið undanþágu fyrir 11 leikmenn til einstaklingsæfinga innandyra og munu leikmennirnir því komast á æfingu í húsi Breiðabliks í Smáranum áður en haldið er út.

Hópinn má í heild sjá hér fyrir neðan, en eins og greint hafði verið frá kom Salbjörg í stað Hildar Bjargar í hópinn á dögunum.

Nafn · Félag (landsleikir)

Bríet Sif Hinriksdóttir · Haukar (2)

Dagbjört Dögg Karlsdóttir · Valur (4)

Eva Margrét Kristjánsdóttir · Haukar (Nýliði)

Guðbjörg Sverrisdóttir · Valur (20)

Hallveig Jónsdóttir · Valur (21)

Isabella Ósk Sigurðardóttir · Breiðablik (4)

Katla Rún Garðarsdóttir · Keflavík (Nýliði)

Lovísa Björt Henningsdóttir · Haukar (2)

Salbjörg Ragna Sævarsdóttir, Keflavík (6)

Sara Rún Hinriksdóttir · Leicester, England (19)

Sigrún Sjöfn Ámundadóttir · Skallagrímur (53)

Þóra Kristín Jónsdóttir · Haukar (17)

Anna Ingunn Svansdóttir · Keflavík (Nýliði)

Þjálfarar og fararteymi:

Þjálfari: Benedikt Guðmundsson

Aðstoðarþjálfarar: Halldór Karl Þórsson og Danielle Rodriguez

Sjúkraþjálfari: Sædís Magnúsdóttir

Fararstjóri: Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ

Sóttvanrarfulltrúi: Guðbjörg Elíasdóttir Norðfjörð, varaformaður KKÍ

Liðstjórn: Kristinn Geir Pálsson, afreksstjóri KKÍ

Fréttir
- Auglýsing -