8 liða úrslit Dominos deildar karla halda áfram í dag með tveimur leikjum. Á Akureyri taka heimamenn í Þór á móti meisturum KR. Fyrri leik þessa einvígis vann KR nokkuð örugglega í Reykjavík og leiða þeir því einvígið 1-0. Svipað er uppi á teningnum í Breiðholti þar sem að heimamenn í ÍR taka á móti Stjörnunni.
Hérna er yfirlit yfir 8 liða úrslitin
Einnig eru þrír leikir í 27. umferð Dominos deildar kvenna. Grindavík tekur á móti meisturum Snæfells, Valskonur heimsækja Keflavík og Skallagrímur fær Njarðvík í heimsókn í Borgarnes.
Hérna er staðan í Dominos deildinni
Leikir dagsins
8 liða úrslit Dominos deildar karla:
Þór Akureyri KR – kl. 16:00 í beinni útsendingu Þór Tv
ÍR Stjarnan – kl. 16:00 í beinni útsendingu Stöð 2 Sport
Dominos deild kvenna:
Grindavík Snæfell – kl. 16:30
Keflavík Valur – kl. 16:30 í beinni útsendingu Stöð 2 Sport
Skallagrímur Njarðvík – kl. 16:30