spot_img

Yfirgefur Breiðablik

Anna Soffía Lárusdóttir hefur sagt upp samningi við Breiðablik og mun hún hætta að spila með Subway deildarliði Breiðabliks.

Samkvæmt fréttatilkynningu þakkar Breiðablik Önnu Soffíu fyrir hennar tíma í Smáranum og óskar henni velfarnaðar í framhaldinu.