HomeFréttirEinar Árni: Vil sjá Ingibjörgu og Köru spila best allra

Einar Árni: Vil sjá Ingibjörgu og Köru spila best allra

15:18

{mosimage}

 

 

Lýsingarbikarhelgin er framundan og á næstu dögum mun Karfan.is leita fanga víða hjá hinum og þessum fræðimönnum sem öðrum í körfuboltahreyfingunni. Það er þjálfari toppliðs Njarðvíkur, Einar Árni Jóhannsson, sem ríður á vaðið með fyrstu spánna. Einar segir Haukakonur vera sigurstranglegra liðið en er þess viss að ÍR-ingar færi félagi sínu góða afmælisgjöf á 100 ára afmælinu. Sjáum hvað Einar hefur að segja:

 

Keflavík-Haukar – laugardagur 17. febrúar kl. 14:00

Ég held að báðir leikir geti orðið mjög spennandi enda lið sem eru að berjast á svipuðum slóðum í deild. Í kvennaleiknum eru Haukar sigurstranglegri þar sem þær eru ríkjandi Íslandsmeistarar, eru efstar í deildinni núna og hafa unnið þá titla sem hafa verið í boði (meistarar meistaranna og Powerade bikar). Þær hafa einnig unnið tvær af þremur

viðureignum liðanna í deild til þessa. Það sem er einnig í þessu er að Haukar töpuðu í bikarnum í fyrra og ætla sér eflaust að ná að taka alla titlana í ár og hafa reyndar til þess alla burði. Keflavíkurstelpur þekkja reyndar orðið þessa leiki ansi vel og þyrstir eflaust í titil eftir titlasnautt ár í fyrra. Ég held því að hungrið verði til staðar á báðum vígstöðum en stóra spurningin verður hvernig Keflavík getur haldið aftur af Helenu Sverrisdóttur sem er einfaldlega besti leikmaður deildarinnar. Þjálfarar þessara liða eru vinir mínir og ég óska þeim bara öllum (Gústa, Jonna og Agga) góðs gengis. Játa reyndar að ég vill sjá Ingibjörgu Elvu og Margréti Köru spila best allra á laugardag 🙂

 

ÍR-Hamar/Selfoss – laugardagur 17. febrúar kl. 16:00

Karlaleikurinn verður eflaust spennandi líka. Hamar/Selfoss hefur verið allt annað lið eftir komu George Byrd í vetur. Þeirra leikur er reyndar mjög ólíkur leik ÍR liðsins þar sem þeir spila mjög rólegan og agaðan bolta. Marvin hefur einnig komið sterkur inn hjá þeim undanfarið og aukið á breiddina. ÍR hefur verið rokkandi enda lent í ýmsu í vetur. Hreggviður Magnússon hefur leikið frábærlega fyrir þá í vetur og það skiptir miklu máli fyrir þá að hann verði góður fyrir laugardag. Breiðhyltingar sýndu þó í síðustu umferð gegn Keflavík að maður kemur í mann stað og þeir hafa góða breidd. Þeir hafa mun fjölbreyttara lið, og byggja meira á hraðanum undir forystu Nate Brown og Óla Sig.

Ég spái ÍR sigri, en þeir hafa unnið viðureignir liðanna sannfærandi í vetur og H/S liðið hefur einfaldlega verið mun sterkara í Hveragerði en á öðrum vígstöðum og ÍR-drengir ná því að gefa félaginu sínu veglega gjöf í tilefni 100 ára afmælis félagsins.

Fréttir
- Auglýsing -