spot_img
HomeFréttir1 á 1: Teitur Örlygsson

1 á 1: Teitur Örlygsson

Fullt nafn: Teitur Örlygsson 

Aldur: 40  

Félag: UMFN  

Hjúskaparstaða: Giftur Helgu Lísu Einarsdóttir, 3 börn  

Happatala: 11  

Hvenær hófst þú að stunda körfubolta og hvar? 8 ára í Njarðvík  

Hver var fyrsta fyrirmyndin þín í körfunni? Valur Ingimundarsson  

Hverjir eru bestu íslensku leikmennirnir í karla og kvennaflokki frá upphafi? Pétur Guðmundsson og Helena Sverrisdóttir 

Besti erlendi leikmaðurinn sem leikið hefur á Íslandi?  Petey Sessoms  

Efnilegasti leikmaður landsins um þessar mundir? Jói Óla.  

Hver var fyrsti þjálfarinn þinn? Ingi Gunnarsson  

Besti þjálfarinn á Íslandi í dag? ??????  

Uppáhals NBA leikmaðurinn þinn? LeBron James  

Besti leikmaður NBA deildarinnar frá upphafi? MJ (Michael Jordan)

Hefur þú farið á NBA leik? Ef já, hvaða leik? Nokkrum sinnum séð Knicks í MSG  

Sætasti sigurinn á ferlinum? Geri ekki upp á milli.  

Sárasti ósigurinn? Allir úrslitaleikir sem tapast.  

Þín uppáhalds íþrótt að frátöldum körfubolta? Fótbolti  

Með hvaða félögum hefur þú leikið? UMFN og Larisa í Grikklandi  

Uppáhalds…….  

kvikmynd: Sideways

bók: Heimskra manna ráð / Einar Kárason

matur: Nú er það Sushi

matsölustaður: Kaffi Duus í hádeginu

hljómsveit: Bítlarnir

staður á Íslandi: Mývatnssveitin og uppsveitir Árnessýslu.

staður erlendis: NY (New York)

lið í NBA: Bulls

lið í enska boltanum: Man Utd.

hátíðardagur: Jól

heimasíða: mbl.is / karfan.is  

Hvernig undirbýrð þú þig fyrir leiki? Það er misjafnt, sem leikmaður þá lék ég helst leikina í huganum og fannst það alla tíð ganga vel. 

Hvort má læra meira af sigur- eða tapleikjum? Tapleikjum finnst mér. Eftir sigurleiki þá gleyma menn sé oft í sigurvímu og horfa ekki gagnrýnt á leikinn. Það má alltaf gera betur. 

Furðulegasti liðsfélaginn?  Af mörgu er að taka 🙂 Ætli ég nefni ekki Friðrik Framkvæmdarstjóra 

Besti dómarinn í IE-deildinni? Simmi (Sigmundur Már Herbertsson) 

Erfiðasti andstæðingurinn? Jón Arnór  

Þín ráð til ungra leikmanna? Vera sem mest með bolta í höndunum milli æfinga. Dribbla boltanum um allan bæ.

 

Fréttir
- Auglýsing -