HomeFréttirKFÍ fær liðsauka

KFÍ fær liðsauka

11:55

{mosimage}

KFÍ hafa gengið frá munnlegu samkomulagi við Svein Blöndal og Birgi Björn Pétursson um að leika með liðinu næsta vetur samkvæmt Ingólfi Þorleifssyni formanni félagsins sem tók þó fram að ekki hefði gefist tími til að skrifa undir samninga.

 

Sveinn er uppalinn KR ingur en lék um tíma með KFÍ, m.a. í Úrvalsdeild 2000-01 þar sem hann skoraði 17,8 stig að meðaltali. Hann hefur leikið samtals 40 leiki í Úrvalsdeild og skorað 11,1 stig auk þess hefur hann leikið 6 unglingalandsleiki. 

Birgir er fæddur og uppalinn KFÍ maður sem leitaði á vit ævintýranna síðasta vetur og skipti til Njarðvíkur en fór svo í Þór Þ. áður en tímabilið hófst. Hann var með í öllum 22 leikjum liðsins og skoraði 23 stig. Hann hefur samtals leikið 44 leiki og skorað 54 stig. Þá lék hann 8 U20 landsleiki sumarið 2006.

 

[email protected]

 

 

Mynd: Gunnar Freyr Steinsson

 

Fréttir
- Auglýsing -