spot_img
HomeFréttirÚrslitaleikur við Kýpur í dag

Úrslitaleikur við Kýpur í dag

8:15

{mosimage}

Ísland og Kýpur mætast í dag á Smáþjóðaleikunum í körfubolta, en þetta er í sextánda sinn sem þjóðirnar mætast. Vinni íslenska liðið tryggir það sér sigur á Smáþjóðaleikunum í fyrsta sinn síðan 1993.

Ísland og Kýpur hafa mæst 15 sinnum og hafa Íslendingar unnið 8 af 15 leikjum. Hins vegar hefur Kýpur unnið fimm síðustu viðureignir liðanna, en Ísland vann Kýpur síðast árið 1999.

Kýpverjar hófu mótið vel og sigruðu örugglega í fyrstu þremur leikjum sínum. Þeir mættu hins vegar ofjörlum sínum í dag og töpuðu með þremur stigum fyrir Lúxemborg. Þau úrslit opna ýmsa möguleika fyrir leik dagsins.

1) Vinni Ísland leikinn er gullið tryggt og Lúxemborg endar í öðru sæti.
2) Vinni Kýpur með 14 stigum eða færri vinnur Ísland leikana og Kýpur endar í öðru sæti.
3) Vinni Kýpur með 15 stigum eða fleiri vinnur Kýpur leikana og Ísland endar í öðru sæti.

Fjórði möguleikinn er að Ísland endi mótið í þriðja sæti, en til að það gerist verður Kýpur að vinna leikinn með 52 stigi eða meira, en þá myndi Lúxemborg hirða annað sætið.

Leikurinn hefst kl 13 að íslenskum tíma

 

www.kki.is

 

Fréttir
- Auglýsing -