spot_img
HomeFréttirAllan Sheppard til reynslu hjá KFÍ

Allan Sheppard til reynslu hjá KFÍ

20:35
{mosimage}

(Á myndinni hægra megin er Sheppard til varnar) 

KFÍ hefur ákveðið að taka til reynslu strák frá Bandaríkjunum. Leikmaðurinn heitir Allan Sheppard og er 198 cm á hæð og tæp 100 kg. Hann útskrifaðist frá St. Francis skólanum í fyrra. 

KFÍ er í 8. sæti 1. deildar karla með 6 stig og leika næst gegn Ármanni á heimavelli laugardaginn 12. janúar kl. 16:00. KFÍ og Haukar hafa leikið fæsta deildarleiki í 1.deildinni, bæði með sjö leiki en nú er við það að ljúka leik FSu og Hauka á Selfossi. 

www.kfi.is

Fréttir
- Auglýsing -