HomeFréttirFjölnir af botni deildarinnar eftir spennuþrungnar mínútur í Dalhúsum (Umfjöllun)

Fjölnir af botni deildarinnar eftir spennuþrungnar mínútur í Dalhúsum (Umfjöllun)

21:52
{mosimage}

(Kristinn Jónasson var einn þriggja Fjölnismanna sem gerði 19 stig í kvöld. Myndin er ekki úr leik kvöldsins) 

Fjölnismenn tóku á móti Hamar í 14. umferð Iceland-Express deildinni í kvöld. Bæði lið höfðu aðeins 6 stig á botni deildarinnar og því mikið í húfi. Eftir spennuþrungnar lokamínútur höfðu heimamenn 3 stiga sigur, 77-74 og tvö gríðarlega mikilvæg stig hjá Fjölni komin í hús. Það munaði þó ekki miklu en Hamarsmenn geiguðu á þriggja stiga skoti á lokasekúndu leiksins.

 

Heimamenn byrjuðu ívið betur í leiknum en sóknarleikur Hamarsmanna var ekki uppá marga fiska. Roni Leimu skoraði fyrstu 3 stigin þeirra þegar þrjár mínútur voru liðnar af leiknum og staðan þá 6-3 fyrir Fjölni. Gestirnir tóku svo á það ráð að taka leikhlé þegar rúmlega fjórar mínútur voru liðnar af leikhlutanum og munurinn kominn uppí 7 stig, 10-3. Leikhléið virtist gera sitt gagn því sóknarleikur gestanna batnaði til muna og náðu þeir að minnka muninn niður í 2 stig í stöðunni 15-13. Nær komust þeir þó ekki en Fjölnir leiddi eftir fyrsta leikhluta 20-16. Karlton Mims var virkilega sterkur fyrir Fjölnismenn með 11 stig. Marvin Valdimarsson meiddist snemma í leikhlutanum en hann virtist hafa snúið sig á ökkla og munar um minna fyrir Hamarsmenn en hann hefur verið lykilmaður fyrir Hamar í vetur.  

 

Leikurinn spilaðist jafn í byrjun annars leikhluta en mikill hiti var í leikmönnum og það fór ekki framhjá neinum að um mikilvægan leik var að ræða. Hjalti Vilhjálmsson, sem kom landanum vel á óvart í kvöld og mætti til leiks með vel innpakkaðan putta þrátt fyrir að menn höfðu talið hann út það sem eftir væri leiktíðar, fékk sína þriðju villu strax eftir þrjár mínútur af leik þegar staðan var 26-23. Þegar leikhlutinn var hálfnaður var munurinn ennþá 3 stig, 34-31 og mikill hraði í leiknum. Seinni hluti leikhlutans var mun rólegri en sá fyrri og lítið skorað. Heimamenn leiddu þó allan leikhlutann en naumt var það því munurinn var aðeins 2 stig þegar flautað var til hálfleiks, 41-39.  

 

Roman Moniak spilaði virkilega vel fyrir gestina í fyrri hálfleik og var stigahæstur með 14 stig og næstur var Roni Leimu með 10 stig. Hjá Fjölni var þa Anthony Drejaj stigahæstur með 12 stig og næstur var Kartlon Mims með 11 stig en hann skoraði ekkert stig í öðrum leikhluta. Stuðningsmenn Hamars, sem fjölmenntu á leikinn í kvöld, púuðu á Karlton allan annan leikhluta fyrir meint fólskubrot gegn Viðari Hafsteinssyni og virtist það að hafa áhrif á leik hans. 

 

Fjölnismenn buðu uppá Iceland Express leikinn títtnefnda í hálfleik í kvöld þar sem ungur drengur að nafni Stefán nældi sér í ferð fyrir tvo í boði Iceland Express á áfangastað að egin vali. 

 

Kristinn Jónasson byrjaði þriðja leikhluta af krafti fyrir Fjölnismenn en hann skoraði fyrstu 8 stig leikhlutans og fyrstu 10 stig Fjölnis. Munurinn var því kominn uppí 11 stig, 53-42, þegar Ágúst þjálfari Hamars ákvað að taka leikhlé eftir tæplega 4 mínútur.  Lítið var um fína sóknartilburði eftir það og vakti harkan í leiknum oftar en ekki meiri athygli en körfuboltatilburðir. Leikhlutinn spilaðist þó jafn eftir áhlaup Fjölnis í byrjun leikhlutans og var munurinn 7 stig í lok leikhlutans, 61-54. 

 

Það gekk lítið sem ekkert í sóknarleik Fjölnismanna í fjórða leikhluta og eftir tvö leikhlé og rúmlega 4 og hálfa mínútu voru aðeins komin 4 stig á töfluna. Sóknarleikur gestanna var ekki mikið fallegri en þeir höfðu minnkað muninn niður í 4 stig þegar Fjölnir tók sitt annað leikhlé í leikhlutanum, 65-61. Hamar skipti yfir í svæðisvörn á lokamínútunum sem virtist skila tilskildum árangri en þegar 2 mínútur voru eftir af leiknum var munurinn aðeins 3 stig, 73-70. Nicholas King minkaði muninn af vítalínunni niður í 1 stig 73-72 og tæplega 40 sekúndur eftir. 

 

Fjölnismenn brunuðu þá í sókn og braut Bojan Bojovic klaufalega af sér þar sem hann sendi Kristinn Jónasson á línuna til að bæta við þriðja stiginu sem hann gerði og munurinn því orðinn 4 stig og aðeins 18 sekúndur eftir. Roni Leimu skoraði 2 stig fyrir Hamar sem sendu svo Anthony Drajaj á línuna um leið og boltinn fór í leik.  Hann misnotaði þó eitt vítið og með 8 sekúndur á klukkuni og 3 stiga mun brunuðu Hamarsmenn í sókn og áttu tvær nauðungstilraunir að þriggja stiga skoti sem geiguðu bæði og gríðarlega mikilvægur heimasigur Fjölnismanna því staðreynd, 77-74.

 

Stigahæstir hjá heimamönnum í Fjölni voru Anthony Drejaj , Kartlon Mims og Kristinn Jónasson allir með 19 stig.  Hjá Gestunum var það Roman moniak með 21 stig, næstiru voru Roni Leimu með 16 stig og Nicholas King með 15 stig. 

 

Tölfræði leiksins

 

Texti: Gísli Ólafsson

Fréttir
- Auglýsing -