16:00
{mosimage}
(Loksins sigur hjá Wade og félögum í Heat)
Miami Heat lauk fimmtán leikja taphrinu sinni með því að vinna sinn fyrsta leik í rúman mánuð í NBA-deildinni í nótt. Miami vann sigur á Indiana, 98-96, en Dwyane Wade skapaði þennan sigur nánast einn síns liðs. Hann skoraði 35 stig í leiknum auk þess sem hann tók átta fráköst og gaf fjórar stoðsendingar. Mark Blount kom næstur með nítján stig hjá Miami. Frá þessu er greint á www.visir.is
Wade átti líka stóran þátt í því að Indiana náði ekki að jafna metin á lokasekúndum leiksins. Leikmönnum Miami var afar létt eftir leikinn enda fyrsti sigur liðsins í síðustu sextán leikjum. Fimmtán leikja taphrina liðsins er sú lengst hjá nokkru liði á tímabilinu og sú næstlengsta í sögu félagsins. Mike Dunleavy var stigahæstur leikmanna Indiana með 25 stig.
Úrslit annarra leikja:
Memphis Grizzlies – LA Clippers 125-120
Charlotte Bobcats – Philadelphia 76ers 96-103
San Antonio Spurs – New Orleans Hornets 78-102



