Í kvöld eru þrír leikir á dagskránni í 1. deild karla í sjöundu umferð deildarinnar, FSu og Þór Akureyri geta um stundarsakir jafnað Þór Þorlákshöfn á toppi deildarinnar sem er eina taplausa liðið í deildinni um þessar mundir.
Þór Akureyri fær Leikni í heimsókn og Skallagrímur tekur á móti Ármanni en báðir leikirnir hefjast kl. 19:15. Valur og FSu mætast svo í Vodafonehöllinni kl. 20:00.
Aðrir leikir dagsins:
17:00 Grindavík-Keflavík (10. flokkur stúlkna – bikar)
18:30 Sindri-Haukar (drengjaflokkur)
19:15 Reynir Sandgerði – HK (2. deild karla)
19:30 Ármann-Höttur (10.flokkur kk – Kennó)
21:30 Haukar b – KR b




