HomeFréttirKeflavík bikarmeistari í 9. flokki kvenna

Keflavík bikarmeistari í 9. flokki kvenna

 
Keflavík er bikarmeistari í 9. flokki kvenna eftir stóran og öruggan sigur á grönnum sínum úr Grindavík. Lokatölur voru 28-84 Keflavík í vil. Þá var Sandra Þrastardóttir valin besti maður leiksins en hún gerði 20 stig, tók 14 fráköst og gaf 4 stoðsendingar í liði Keflavíkur.
Um ójafnan leik var að ræða í fyrstu viðureign dagsins. Keflvíkingar pressuðu frá fyrstu andartökum leiksins og voru því fljótar að komast í 0-8 og síðar 5-24. Til að bæta gráu ofan á svart fékk Ingibjörg Sigurðardóttir þrjár villur í fyrsta leikhluta hjá Grindavík en hún er einn af sterkari leikmönnum liðsins. Sara Hinriksdóttir, einn af efnilegri kvennaleikmönnum landsins í dag, byrjaði vel í liði Keflavíkur og var með 13 stig eftir fyrstu tíu mínúturnar þar sem Keflavík leiddi 5-30.
 
Grindavík opnaði annan leikhluta og minnkaði muninn í 7-30 en þá fékk Ingibjörg Sigurðardóttir sína fjórðu villu hjá gulum og hélt á bekkinn. Stuttur fyrri hálfleikur hjá Ingibjörgu að þessu sinni. Keflvíkingar settu inn leikmenn af bekknum sem stóðu sig vel og sáu til þess að Grindvíkingar færðust ekki of nærri, Keflavík leiddi 20-47 í leikhléi þar sem Sara R. Hinriksdóttir var með 13 stig í liði Keflavíkur í hálfleik en Rannveig María Björnsdóttir var með 9 stig í liði Grindavíkur.


Sandra L. Þrastardóttir sækir að körfu Grindavíkur.

 
Grindvíkingar áttu sér aldrei viðreisnar von gegn Keflavík í síðari hálfleik. Að loknum þriðja leikhluta var staðan 23-70 þar sem Keflavík vann leikhlutann 3-23 og sigldu örugglega í átt að bikartitlinum þar sem lokatölur voru 28-84 Keflavík í vil.
 
Sandra Þrastardóttir, besti maður leiksins, gerði 20 stig, tók 14 fráköst og gaf 4 stoðsendingar í liði Keflavíkur. Sara R. Hinriksdóttir bætti við 21 stigi og tók 10 fráköst ásamt því að stela 7 boltum. Stigahæst í liði Grindavíkur var Rannveig María Björnsdóttir með 9 stig og 8 fráköst.
 
Myndir/ Tomasz Kolodziejski [email protected]  
 
Umfjöllun: Jón Björn Ólafsson[email protected]  
Fréttir
- Auglýsing -