HomeFréttirHöttur bikarmeistari í 10. flokki karla: Tímamót hjá félaginu

Höttur bikarmeistari í 10. flokki karla: Tímamót hjá félaginu

 
Höttur frá Egilsstöðum er bikarmeistari í 10. flokki karla en liðið vann spennusigur á Stjörnunni úr Garðabæ í bikarúrslitaviðureign liðanna að Ásvöllum. Þetta er fyrsti bikaritill Hattar í sögu félagsins en lokatölur í leiknum voru 64-61 Hetti í vil. Þá var Eysteinn Bjarni Ævarsson valinn besti maður leiksins með 22 stig, 19 fráköst og 4 stoðsendingar.
Bæði Stjarnan og Höttur voru að leika sinn fyrsta bikarúrslitaleik í dag, Stjarnan mætti með svæðisvörn en lentu strax í vandræðum með Eystein Bjarna Ævarsson í liði Hattar sem fiskaði fljótt þrjár villur á Garðbæinga.
 
Höttur náði snemma undirtökunum og komust í 14-8 og á sama tíma fengu Garðbæingar dæmt á sig tæknivíti fyrir mótmæli við dómara, helst til of snemma í leiknum enda liðin rétt byrjuð að þreifa hvort á öðru. Austanmenn leystu svæðisvörn Stjörnunnar vel en Daði Lár Jónsson hleypti smá lífi í leik Stjörnunnar sem minnkaði muninn í 17-14 og þannig stóðu leikar eftir fyrstu tíu mínúturnar.
 
Dagur Kár Jónsson jafnaði metin fyrir Stjörnuna í 19-19 snemma í upphafi annars leikhluta en hann og Christopher Cannon létu vel að sér kveða í liði Stjörnunnar í öðrum leikhluta. Cannon kom Stjörnunni í 29-32 með þriggja stiga körfu en það var hans fjórði þristur í tíu tilraunum, Höttur átti þó lokaorðið og minnkaði muninn í 31-32 og þannig stóðu leikar í hálfleik.
 
Eysteinn Bjarni Ævarsson var með 14 stig og 12 fráköst í liði Hattar í leikhléi en hjá Stjörnunni var Christopher Cannon með 12 stig og 4 fráköst.


Eysteinn Bjarni Ævarsson sækir að körfu Stjörnunnar

 
Garðbæingar voru við völdin í upphafi þriðja leikhluta og komust í 36-40 en þá tóku Hattarmenn við sér, Bjarni Þór Harðarson og Steinar Aron Magnússon komu með stóra þrista og komu hetti yfir 46-43 á 10-3 áhlaupi Hattar. Allt gekk upp á lokaspretti leikhlutans hjá Hetti sem leiddu 51-45 fyrir fjórða og síðasta leikhluta.
 
Bjarni Þór Harðarson var mættur alla leiðin frá Egilsstöðum til þess að verða bikarmeistari, í hvert sinn sem Garðbæingar færðust nærri í fjórða leikhluta setti Bjarni niður dýra þrista fyrir Hött. Reyndar voru þeir þrír talsins þristarnir hjá Bjarna í fjórða leikhluta og sá þriðji breytti stöðunni í 63-55. Stjarnan klóraði í bakkann og áttu þriggja stiga skot sem hefðu getað jafnað metin í 64-64 en það geigaði og Höttur fagnaði sínum fyrsta bikartitli í sögu félagsins í körfuknattleik.
 
Eysteinn Bjarni Ævarsson gerði 22 stig, tók 19 fráköst og gaf 4 stoðsendingar í liði Hattar. Steinar Aron Magnússon barðist einnig hetjulega með 16 stig, 4 stoðsendingar og 3 fráköst og Bjarni Þór Harðarson bætti við 12 stigum, 3 fráköstum og 3 stoðsendingum. Hjá Stjörnunni var Dagur Kár Jónsson með 24 stig og 5 fráköst og Christopher Cannon gerði 15 stig, tók 6 fráköst og gaf 4 stoðsendingar.
 
Ljósmyndir/ Tomasz Kolodziejski [email protected]
 
Umfjöllun: Jón Björn Ólafsson[email protected]
Fréttir
- Auglýsing -