HomeFréttirKeflavík bikarmeistari í stúlknaflokki

Keflavík bikarmeistari í stúlknaflokki

 
Keflavík landaði í dag sínum þriðja bikarmeistaratitli í yngri flokkum kvenna þessa helgina þegar að stúlknaflokkur félagsins vann öruggan stórsigur á Haukum. Keflavík tók frumkvæðið snemma og leit aldrei um öxl og vann að lokum verðskuldaðan sigur, 49-72, þar sem allir leikmenn liðsins komust á blað. Lovísa Falsdóttir var valin besti maður leiksins með 19 stig, 5 fráköst og 3 stolna bolta.
Sigrún Albertsdóttir opnaði stigareikning Keflavíkur með þriggja stiga körfu en Dagbjört Samúelsdóttir svaraði þá að bragði fyrir Hauka með tveimur þristum. Óhætt er að segja að Haukar hafi ekki komist lengra í fyrsta leikhluta því Keflavík gerði 18 næstu stig gegn aðeins tveimur frá Haukum og leiddu 8-21 eftir fyrstu tíu mínúturnar þar sem Lovísa Falsdóttir var komin með tíu stig í liði Keflavíkur en hún sótti grimmt á Haukakörfuna í byrjun leiks.
 
Eva Rós Guðmundsdóttir stráði salti í sár Hauka með þrist og breytti stöðunni í 8-24 í upphafi annars leikhluta. Haukar minnkuðu muninn í 17-28 og náðu að bíta aðeins frá sér en réðu samt ekkert við hraðann í Keflavíkurliðinu sem skapaði þeim margar auðveldar hraðaupphlaupskörfur. Haukar náðu muninum niður í 10 stig, 20-30, en þá gaf Keflavík allt í botn og jók muninn upp í 21 stig, 22-43 og þannig stóðu leikar í hálfleik.
 
Lovísa Falsdóttir var með 13 stig og 3 fráköst í Keflavíkurliðinu í hálfleik en Dagbjört Samúelsdóttir var með 9 stig og 4 fráköst hjá Haukum.

 
Keflvíkingar sýndu strax í upphafi þriðja leikhluta að þær ætluðu sér ekkert annað en bikarmeistaratitil í dag, þær byrjuðu síðari hálfleik 6-0 og leiddu svo 32-57 fyrir fjórða og síðasta leikhluta. Fátt annað en kraftaverk þurfti til hjá Haukum ef þær ætluðu sér að nýju upp að hlið Keflavíkur.
 
Í fjórða leikhluta var þetta einungis spurning um lokatölur. Haukar höfðu misst einbeitta Keflvíkinga of langt frá sér og lokatölur reyndust 49-72 Keflavík í vil.
 
Lovísa Falsdóttir var með 19 stig, 5 fráköst og 3 stolna bolta í liði Keflavíkur, Eva Rós Guðmundsdóttir bætti við 12 stigum, 8 fráköstum og 4 stoðsendingum en allir leikmenn Keflavíkur skoruðu í leiknum. Hjá Haukum var Dagbjört Samúelsdóttir með 14 stig, 6 fráköst og 4 stolna bolta og henni næst var Lovísa Björt Henningsdóttir með 10 stig og 15 fráköst.
 
Ljósmyndir/ Tomasz Kolodziejski [email protected]
 
Umfjöllun/ Jón Björn Ólafsson[email protected]  
Fréttir
- Auglýsing -