HomeFréttirLeikir dagsins: Deildarmeistaratitillinn á loft í Hveragerði?

Leikir dagsins: Deildarmeistaratitillinn á loft í Hveragerði?

 
Heil umferð fer fram í Iceland Express deild kvenna í kvöld og takist toppliði Hamars að leggja gesti sína í KR að velli fær Hamar afhentan deildarmeistaratitilinn. Staðan er þannig að ef Hamar tapar og Keflavík líka verður Hamar engu að síður deildarmeistari. Eina leiðin fyrir Keflavík til þess að verða deildarmeistari er að Hamar tapi í kvöld og svo í lokaumferðinni gegn Keflavík með 29 stiga mun eða meira. Sigur hjá Hamri í kvöld veldur því að úrslitin í viðureign Keflavíkur og Hauka hefur engin áhrif á stöðu Hamars.
Leikir kvöldins í IEX deild kvenna, allir kl. 19:15
 
Hamar-KR
Keflavík-Haukar
Njarðvík-Fjölnir
Snæfell-Grindavík
 
Þá er einn leikur í 2. deild karla þegar Hekla tekur á móti KV kl. 20:00 að Hellu.
Fréttir
- Auglýsing -