HomeFréttirOrlando lagði New York og Memphis skelltu Spurs

Orlando lagði New York og Memphis skelltu Spurs

 
Átta leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt og höfðu Orlando Magic sigur á heimavelli gegn New York Knicks og San Antonio Spurs gerðu ekki ferð til fjár er þeir mættu Memphis Grizzlies á útivelli en Grizzlies unnu í nótt sinn fimmta sigur í röð á heimavelli.
Orlando 116-110 New York
Chaunsey Billups og Amare Stoudemire gerðu sín hvor 30 stigin í liði Knicks og Carmelo Anthony bætti við 25 en það dugði ekki til gegn Orlando þar sem Dwight Howard fór fremstur í flokki með 30 stig og 16 fráköst. Næstur í liði Orlando var Jameer Nelson með 26 stig.
 
Memphis 109-93 San Antonio
Tony Parker var ekki með Spurs í nótt sökum meiðsla en atkvæðamestur í liði gestanna var Gary Neal með 14 stig en hann var eini liðsmaður Spurs sem komst yfir 10 stigin í leiknum, enginn byrjunarliðsmaður náði að skora 10 stig. Zach Randolph var venju samkvæmt fyrirferðamikill í liði Grizzlies með 21 stig, 10 fráköst og 5 stoðsendingar og Tony Allen bætti við 20 stigum.
 
Önnur úrslit næturinnar:
 
Indiana 109-100 Golden State
Philadelphia 93-101 Dallas
Toronto 96-90 New Orleans
Milwaukee 92-90 Detroit
Minnesota 79-90 Lakers
Portland 87-103 Houston
 
Mynd/ Howard splæsti í tröllatvennu gegn New York í nótt.
 
Fréttir
- Auglýsing -