Atlanta Hawks bundu í nótt enda á þriggja leikja sigurgöngu Chicago Bulls í NBA deildinni með 83-80 sigri. Hawks tókst meira að segja að hemja Derrick Rose leikstjórnanda Bulls niður í 12 stig og 12 stoðsendingar. Al Horford fór á kostum í liði Hawks með 31 stig og 16 fráköst. Bulls fengu tvo þrista til að jafna metin á lokasprettinum, sá fyrri frá Rose var úr erfiðri stöðu en Bulls náðu frákastinu og boltinn barst til Kyle Korver sem hafði sett niður tvo þrista í jafn mörgum tilraunum fyrr í leiknum. Sá þriðji, ,,air-ball“ eða loftbolti á ástkæra ylhýra. Líkast til versta lokaskot deildarinnar til þessa.Sjá loftþristinn hér í lok myndbandsins.
Önnur úrslit næturinnar:
Cleveland 99-109 San Antonio
Washington 102-106 Golden State
Boston 115-103 Phoenix
Detroit 105-116 Minnesota
New York 107-88 New Orleans
Oklahoma 113-89 Indiana
Denver 120-80 Charlotte
Sacramento 102-107 Portland
LA Clippers 106-103 Houston
Mynd/ Al Horford fór mikinn gegn Bulls í nótt.





