HomeFréttirAxel fær Svendborg eða Bakken í fyrstu umferð

Axel fær Svendborg eða Bakken í fyrstu umferð

 
Nú eru aðeins tvær umferðir eftir í dönsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik og standa málin þannig að Axel Kárason og félagar í Værløse sitja í 8. sæti deildarinnar og sama hver úrslitin verða mun liðið sitja áfram í því sætinu. Því er ljóst að Værløse mætir annað hvort Svendborg Rabbits eða Bakken Bears í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Axel og félagar mæta því liði sem verður deildarmeistari.
Þó enn séu tvær umferðir eftir í Danmörku liggur fyrir að fyrsta umferð úrslitakeppninnar líti út eitthvað á þessa leiðina:
 
Næstved-SISU (staðfest)
Horsholm-Horsens (staðfest)
Svendborg/Bakken-Værløse
Svendborg/Bakken-Aabyhoj
 
Fjórir leikir fara fram í Danmörku í kvöld þar sem Axel og Værløse mæta Høsholm á útivelli.
 
Leikir kvöldsins:
 
Værløse-Hørsholm
Bakken-BK Amager
SISU-Horsens IC
Svendborg-Næstved
 
Fréttir
- Auglýsing -