HomeFréttirTCU með sigur í síðasta heimaleiknum á Senior Night

TCU með sigur í síðasta heimaleiknum á Senior Night

 
Helena Sverrisdóttir og félagar í bandaríska háskólaliðinu kvöddu venjulega deildarkeppni í nótt með öruggum 88-51 sigri á Air Force skólanum. Með sigrinum hafnar TCU í 2. sæti í Mountain West riðlinum en úrslitakeppni riðilsins hefst 8. mars n.k. og fer hún fram í Las Vegas.
Í nótt var svokallað Senior Night þar sem leikmenn á útskriftarári kvöddu skólann í sínum síðasta heimaleik og var Helena í hópi útskriftarnema sem fengu góðar kveðjur frá áhorfendum.
 
Af leiknum er það að segja að Helena var með 16 stig, 4 fráköst og 3 stoðsendingar í þessum örugga sigri og TCU lauk venjulegu tímabili með 21 sigri og 9 tapleikjum. Í riðlakeppni Mountain West riðilsins vann TCU 13 leiki og tapaði 3. Þá hefur liðið unnið 35 af síðustu 37 heimaleikjum sínum.
 
Helena sagði á blaðamannafundi eftir leik að síðustu fjögur ár með skólanum og liðinu hefðu verið eftirminnileg: ,,Ég tel að mér hafi tekist að bæta minn leik og hver dagur hér hefur verið frábær, þetta er búið að vera erfitt en eftir á að hyggja hafa þetta verið fjögur frábær ár.“
 
Í augnablikinu er Helena í 3. sæti í sögu skólans í flestum körfum skoruðum í teignum eða 547 talsins og þá er hún í 4. sæti yfir leikjahæstu leikmenn liðsins frá upphafi með 127 leiki fyrir Texas Christian University.
 
Mynd/ Útskriftarnemar TCU liðsins sem eru á sínu síðasta tímabili með skólaliðinu. Frá vinstri: Emily Carter, Rachel Rentchler, Micah Garoutte og Helena Sverrisdóttir.
 
Fréttir
- Auglýsing -