HomeFréttirÚrslit: Soskic hetja Grindavíkur sem fyrst liða vann í DHL-Höllinni

Úrslit: Soskic hetja Grindavíkur sem fyrst liða vann í DHL-Höllinni

 
Þrír leikir fóru fram í Iceland Express deild karla í kvöld. Í raun áttu þeir að vera fjórir en viðureign Keflavíkur og KFÍ var frestað þar sem ekki var flogið frá Ísafirði. Þá var Mladen Soskic hetja Grindavíkur þegar gulir unnu KR 103-104 í DHL-Höllinni í Vesturbænum og urðu þar með fyrstir liða þetta tímabilið til að leggja KR í Vesturbænum. Einn heimavöllur stendur því eftir óhaggaður og hann er í Stykkishólmi og hefur nýverið farið að ganga undir nafninu Breiðafjarðarhöllin.
Úrslit kvöldsins
 
Hamar 90-103 ÍR
Tölfræði kemur síðar
 
Fjölnir 88-83 Tindastóll
Þrátt fyrir ósigurinn hefur Tindastóll betur innbyrðis á milli liðanna en í kvöld náðu Fjölnismenn í rándýr stig og settu Hamar í fallsæti. Brandon Brown gerði 22 stig og tók 11 fráköst í liði Fjölnis og Magni Hafsteinsson bætti við 19 stigum og 4 fráköstum. Hjá Tindastól var Sean Cunningham með 25 stig, 10 fráköst og 5 stoðsendingar.
 
KR 104-105 Grindavík
7 sekúndum fyrir leikslok kom Marcus Walker KR í 104-103 en Mladen Soskic átti lokaorð leiksins fyrir Grindavík og tryggði gulum 104-105 sigur. Ryan Pettinella og Ólafur Ólafsson fóru fyrir Grindvíkingum í kvöld, Pettinella með 26 stig og 11 fráköst og Ólafur með 25 stig, 6 fráköst og 5 stoðsendingar.
 
Nánar síðar…
 
Staðan í deildinni 

Mynd/ Úr safni: Ólafur Ólafsson átti góðan dag í liði Grindavíkur.

Fréttir
- Auglýsing -