HomeFréttirNýr kani dugði til: Grindavík hefndi fyrir bikarúrslitaleikinn

Nýr kani dugði til: Grindavík hefndi fyrir bikarúrslitaleikinn

 
Grindavík bar sigurorð af KR í DHL höllinni í kvöld með minnsta mun, 104-105. Heimamenn leiddu mest allan leikinn en Grindavík gerði öfugt við bikarúrslitaleikinn og komu sterkari til leiks í seinni hálfleik sem skilaði þeim tveimur mikilvægum stigum í deildinni. Lokamínúturnar minntu á úrslitakeppnina sem liggur í loftinu og leikurinn var frábær skemmtun fyrir alla þá sem lögðu leið sína í DHL höllina í kvöld.
Stigahæstur í liði Grindavíkur var Ryan Pettinella með 26 stig og 11 fráköst en næstir voru Ólafur Ólafsson með 25 stig og Páll Axel Vilbergsson með 19 stig. Hjá KR var Marcus Walker yfirburðamaður með 31 stig en næstir voru Hreggviður Magnússon með 18 stig og Ólafur Már Ægisson með 14 stig, þar af 12 á nokkura mínútna kafla í fjórða leikhluta.
 
Leikurinn byrjaði nokkuð jafn og skiptust liðin á að skora fyrstu mínúturnar. Það voru svo heimamenn sem áttu fyrsta áhlaupið og það var öflugt. Þeir breyttu stöðunni úr 6-5 í 14-7 á um það bil mínútu og þegar leikhlutinn var hálfnaður höfðu þeir náð 9 stiga forskoti, 18-9. Þá tók Guðmundur Bragason, sem þjálfaði Grindavík í fjarveru Helga Jónasar vegna veikinda, leikhlé fyrir gestina. Grindvíkingum tókst þó að laga sína stöðu örlítið eftir því sem leið á leikhlutan og virtist þá muna miklu um að Marcus nokkur Walker fékk hvíld vegna villuvandræða en hann hafði verið fremsti maður í góðri pressuvörn heimamanna. Á þeim tíma tókst Grindavík að breyta stöðunni úr 22-13 í 24-20 þegar rúm ein og hálf mínúta var eftir en þá tók Hrafn Kristjánsson, þjálfari KR leikhlé. KR áttu seinustu 5 stig leikhlutans og höfðu því 7 stiga forskot þegar fyrsta leikhluta lauk, 29-22.
 
Bæði lið voru að spila fínan varnarleik í byrjun annars leikhluta og voru því lítið um góða sóknartilburði. KR hélt því 7 stiga forskoti sem það hafði þegar leikhlutinn byrjaði og höfðu yfir 33-26. Það var mikill hiti í leikmönnum og ljóst að leikur liðana í Laugardalshöllinni var ekki gleymdur. Ómar Sævarsson fékk sína þriðju villu á ótrúlega stuttum tíma áður en að leikhlutinn var hálfnaður en hann lét vel fyrir sér finna í varnarleik Grindvíkinga. Gestirnir náðu svo góðu áhlaupi þegar um það bil fjórar mínútur voru eftir af fyrri hálfleik og Ryan Pettinella fékk tækifæri til þess að minnka forskotið niður í 2 stig þegar hann var sendur á línuna en misnotaði bæði skotin, 35-31. Gestirnir hleyptu þeim ekki lengra frá sér en svo í fyrri hálfleik en það munaði einmitt þremur stigum þegar flautað var til leikhlés, 46-43.
 
Stigahæstur í liði KR í hálfleik var Marcus Walker með 15 stig en næstir voru Brynjar Þór Björnsson með 10 stig og Pavel Ermolinskij með 7 stig. Hjá Grindavík var Ryan Pettinella með 14 stig en næstir voru Páll Axel Vilbergsson með 12 stig og Ólafur Ólafsson með 11 stig.
 
Páll Axel jafnaði leikinn með fyrsta skoti seinni hálfleiks en KR var ekki lengi að ná forskotinu aftur og þegar þrjár mínút voru liðnar af leikhlutanum höfðu þeir yfir 57-50 og pressuðu gestina stíft. Grindavík lét það ekki slá sig útaf laginu og höfðu náð forskotinu í fyrsta skipti í leiknum síðan á upphafsmínútunm þegar leikhlutinn var hálfnaður, 59-61. Hrafn Kristjánsson tók þá leikhlé til þess að lesa yfir sínum mönnum. Hreggviður Magnússon kom þá sterkur inn fyrir KR og skoraði næstu 5 stig leiksins og kom KR aftur yfir. Grindavík átti hins vegar næstu mínútur og voru komnir 5 stigum yfir þegar ein mínúta var eftir af þriðja leikhluta, 68-73. Marcus Walker átti seinasta orðið í þriðja leikhluta og munnkaði muninn fyrir KR sem var þó 5 stigum undir, 73-77.
 
Heimamenn skiptu yfir í svæðisvörn í upphafi fjórða leikhluta og bekkurinn nánast allur staðinn á fætur til þess að hvetja sína menn áfram. Grindavík tók leikhlé þegar tvær mínútur voru liðnar af leikhlutanum og það munaði 3 stigum á liðunum, 78-81. KR hélt sér inní leiknum með svakalegum þristum frá Ólafi Má Ægissyni sem skoraði 12 stig fyrir KR á fyrstu 4 mínútum fjórða leikhluta. KR hafði því náð forskotinu aftur þegar fjórði leikhluti var hálfnaður og Grindavík tók leikhlé, 92-91.
 
Þegar þrjár mínútur voru eftir af leiknum tók Ólafur Ólafsson uppá því að stela boltanum og keyra völlinn endilangan og leggja boltan ofaní yfir Marcus Walker, en þá ákvað Hrafn Kristjánsson að taka leikhlé fyrir KR. Ólafur hafði jafnað leikinn og það stefndi í æsispennandi lokamínútur, 96-96. Heimamenn höfðu frumkvæðið næstu mínútuna og leiddu 102-100 þegar leikklukkan sýndi eina mínútu eftir. Ryan Pettinella setti niður laglegt sniðskot og fékk vítið að auki í næstu sókn. Þvert á tölfræðina setti Ryan vítið niður og kom Grindavík yfir. Næstu sekúndur voru æsispennandi og gríðarlegur hiti í mönnum.
 
Það var barist um hvern bolta og áhorfendur farnir að láta vel í sér heyra. KR klikkaði á næstu sókn og fengu Grindvíkingar því tækifæri til þess að ná þriggja stiga forskoti. Ryan Pettinella var þá aftur sendur á línuna en í þetta skiptið brást honum bogalistin. KR fór því í sókn með 21 sekúndu á skotklukkunni. Marcus Walker kom KR yfir þegar það voru 6 sekúndur eftir af leiknum og Grindavík tók leikhlé. Stuðningsmenn KR stóðu á fætur þegar Grindavík hélt í sókn. Mladen Soskic fékk boltan, keyrði á körfuna og lagði boltan ofaní þegar tvær sekúndur voru eftir af leiknum. KR brunaði fram og Marcus Walker átti seinustu tilraun leiksins sem geigaði og fyrsta tap KR á heimavelli í deildinni í vetur því staðreynd, 104-105.
 
Heildarskor:
 
KR: Marcus Walker 31/6 stoðsendingar, Hreggviður Magnússon 18/4 fráköst, Brynjar Þór Björnsson 14/4 fráköst, Ólafur Már Ægisson 14, Pavel Ermolinskij 9/6 fráköst/10 stoðsendingar/5 stolnir, Finnur Atli Magnússon 7/7 fráköst, Jón Orri Kristjánsson 6, Skarphéðinn Freyr Ingason 4, Páll Fannar Helgason 1/4 fráköst, Martin Hermannsson 0, Ágúst Angantýsson 0.
 
Grindavík: Ryan Pettinella 26/11 fráköst, Ólafur Ólafsson 25/6 fráköst/5 stoðsendingar/4 varin skot, Páll Axel Vilbergsson 19/5 fráköst, Mladen Soskic 17/8 fráköst, Nick Bradford 8/7 fráköst/8 stoðsendingar, Björn Steinar Brynjólfsson 6, Ómar Örn Sævarsson 4/4 fráköst, Þorsteinn Finnbogason 0, Helgi Björn Einarsson 0, Egill Birgisson 0, Ármann Vilbergsson 0/4 fráköst.
 
Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson, Rögnvaldur Hreiðarsson

Staðan í deildinni

 
Ljósmynd/ Tomasz Kolodziejski: Grindvíkingar létu ekki standa á fögnuðinum í DHL-Höllinni.
 
Umfjöllun: Gísli Ólafsson
Fréttir
- Auglýsing -