Fjölnismenn komust í kvöld úr fallsæti í Iceland Express deild karla með 88-83 sigri á Tindastól í Iceland Express deild karla. Leikurinn var jafn og harður en Fjölnismenn voru ávallt skrefinu á undan gestum sínum og komust með sigrinum upp úr fallsætinu og 10. sæti deildarinnar. Brandon Brown var stigahæstur hjá Fjölni með 22 stig og 11 fráköst og troðslu sem hristi rækilega upp í áhorfendum.
Brandon Brown var allt í öllu hjá Fjölni í upphafi leiks, skellti niður tveimur þristum og fékk eina alley-up stoðsendingu frá Ægi Þór Steinarssyni og heimamenn í Fjölni byrjuðu 8-2. Gulir héldu undirtökunum þar sem Brown og Jón Sverrisson tóku fínar rispur og leiddu heimamenn 24-21 að loknum fyrsta leikhluta.
Stólarnir opnuðu annan leikhluta með þrist og jöfnuðu metin 24-24 en heimamenn í Fjölni tóku forystuna að nýju og leiddu 32-26 eftir svaðalega troðslu hjá Brandon Brown er hann tók frákast af hringnum og tróð með látum yfir Tindastólsteiginn og stuðningsmenn Fjölnis nánast ærðust af kæti og svei manni þá ef stuðningsmenn Tindastóls klöppuðu þessum tilþrifum ekki einnig lof í lófa.
Hayward Fain tók ekki þátt í fyrri hálfleiknum og munaði um minna, kappanum var einfaldlega fyrirmunað að skora og Fjölnir leiddi 41-35 í leikhléi. Brandon Brown var með 20 stig og 5 fráköst í liði Fjölnis í hálfleik en hjá Tindastól voru Cunningham og Kitanovic með 9 stig hvor.
Fain var þó snöggur að koma sér á blað í síðari hálfleik og úr stöðunni 48-41 Fjöni í vil náðu gestirnir að jafna 50-50 með glæsilegri rispu þar sem Fain skoraði 7 stig í röð. Brown var orðinn fremur lúinn í liði Fjölnis og ljóst að þrátt fyrir að kappinn geti leikið magnaðar háloftalistir þá er hann líkast til ekki í sínu besta formi.
Töluvert hitnaði í kolunum á seinni stigum þriðja leikhluta, jaxlarnir Helgi Rafn Viggósson og Hjalti Vilhjálmsson áttu smá orðastað og Kitanovic fékk sína fjórðu villu í liði Tindastóls. Þegar svo 18 sekúndur voru eftir fékk Helgi Rafn Viggósson sína fimmtu villu í liði Tindastóls og á leið sinni út af nældi hann sér í tæknivillu og kvaddi því leikinn með smá NBA-stíl, hlaðinn 6 villum. Fjölnismenn náðu svo að slíta sig aftur frá er Ingvaldur Magni setti niður 3 af 4 vítum fyrir Fjölni undir lok þriðja leikhluta og staðan 63-58 Fjölni í vil fyrir lokaátökin.
Tveir sterkir þristar frá Ægi og Arnþóri komu Fjölni í 69-62, Magni tók þátt í veislunni og 74-66 og þá varð Tómas Heiðar Tómasson að stimpla sig inn, 76-68, en þetta voru hans fyrstu stig í leiknum eftir tæplega 35 mínútna leik.
Fjölnismenn náðu upp tíu stiga mun, 81-71, en Stólarnir eru ólseigir og náðu að minnka muninn í 83-79 eftir þrist úr hægra horninu frá Friðriki Hreinssyni þegar ein og hálf mínúta var til leiksloka. Þegar um 50 sekúndur voru til leiksloka rak Tómas Heiðar svo smiðshöggið fyrir Fjölni með þriggja stiga körfu og staðan 86-79. Tindastóll átti ekki afturkvæmt eftir þessa stóru körfu frá Tómasi og lokatölur reyndust 88-83.
Heildarskor:
Fjölnir: Brandon Brown 22/11 fráköst, Ingvaldur Magni Hafsteinsson 19/4 fráköst, Jón Sverrisson 16/11 fráköst, Ægir Þór Steinarsson 12/4 fráköst/9 stoðsendingar, Sindri Kárason 6, Arnþór Freyr Guðmundsson 5, Tómas Heiðar Tómasson 5, Hjalti Vilhjálmsson 3, Einar Þórmundsson 0, Elvar Sigurðsson 0, Leifur Arason 0, Sigurður Þórarinsson 0.
Tindastóll: Sean Kingsley Cunningham 25/10 fráköst/5 stoðsendingar, Dragoljub Kitanovic 16/6 fráköst, Hayward Fain 13/12 fráköst, Svavar Atli Birgisson 9, Helgi Rafn Viggósson 8/10 fráköst, Friðrik Hreinsson 8, Helgi Freyr Margeirsson 4, Pálmi Geir Jónsson 0, Hreinn Gunnar Birgisson 0, Ingvi Rafn Ingvarsson 0.
Dómarar: Eggert Þór Aðalsteinsson, Davíð Kr. Hreiðarsson
Umfjöllun og myndir: Jón Björn Ólafsson – [email protected]





