Hlaðborð af körfuknattleik verður á boðstólunum í kvöld þegar 20. umferðinni í Iceland Express deild karla lýkur og deildarkeppnin í 1. deild karla tekur enda þar sem Þór úr Þorlákshöfn fær afhentan deildarmeistaratitilinn fyrir sigurinn í 1. deild. Allir leikir kvöldsins í Iceland Express deildinni og 1. deildinni hefjast kl. 19:15.
Leikirnir í IEX deild karla:
Keflavík-KFÍ
Stjarnan-Snæfell
Haukar-Njarðvík
Keflavík-KFÍ
Þessum leik var frestað í gær þar sem ekki var flogið frá Ísafirði. Við látum umsögn um leikinn frá því í gær fljóta hér með að nýju. KFÍ fær það vandasama verk að heimsækja Keflavík eftir ósigur liðsins í framlengingu gegn erkifjendum sínum í Njarðvík. Enginn öfundsverður af því hlutskipti og Vestfirðingar á botni deildarinnar með 8 stig og búnir að tapa níu útileikjum í röð í deildinni á meðan Keflavík hefur unnið sjö heimaleiki í röð í Toyota-höllinni.
Stjarnan-Snæfell
Hólmarar hafa unnið síðustu fjóra deildarleiki sína og hafa nú endurheimt þá Ryan Amoroso og Emil Þór Jóhannsson úr meiðslum og því getur Snæfell í fyrsta sinn í langan tíma telft fram fullskipuðu liði. Sigur í kvöld fer langleiðina með að tryggja Snæfell deildarmeistaratitilinn. Garðbæingar leitast eftir því að skoppa sterkir til baka eftir skell í Seljaskóla í síðustu umferð en Stjarnan hefur unnið síðustu tvo heimaleiki sína og stigin ekki auðsótt í Ásgarð og því von á hörkuleik millum þessara tveggja liða í kvöld.
Haukar-Njarðvík
Hafnfirðingar hafa tapað síðustu þremur deildarleikjum sínum og í síðustu umferð var skellurinn þungur gegn Snæfell í Stykkishólmi. Njarðvíkingar mæta í heimsókn í kvöld og hafa grænir unnið tvo deildarleiki í röð og eru á blússandi siglingu eftir magnaðan spennusigur á grönnum sínum úr Keflavík í síðustu umferð.
Leikir kvöldsins í 1. deild karla:
FSu-Laugdælir
Leiknir-Ármann
Þór Þorlákshöfn-Skallagrímur
Höttur-Þór Akureyri
Valur-Breiðablik
Fyrir umferðina í 1. deildinni í kvöld voru flestar línur skýrar, Þór Þorlákshöfn er deildarmeistari. Þór Akureyri, Skallagrímur, Valur og Breiðablik leika í úrslitakeppninni, FSu, Höttur og Laugdælir kveðja tímabiliði í kvöld með sæti í 1. deild á næstu leiktíð. Þá falla Ármenningar og Leiknismenn sem komu sem nýliðar inn í deildina. Það eina sem á eftir að skýrast er lokaröðun liðanna í úrslitakeppnina og verður ekki hægt að staðfesta hana fyrr en að leikjum kvöldsins loknum.
Fjölmennum á vellina í kvöld!





