HomeFréttirOrlando vann Flórídaslaginn: Kirilenko með versta layup sögunnar

Orlando vann Flórídaslaginn: Kirilenko með versta layup sögunnar

 
Tveir leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt og var um spennuviðureignir að ræða. Orlando Magic náðu í mikilvægan sigur á heimavelli Miami í Flórídaslagnum og í Salt Lake City vann Denver nauman sigur á Utah. 
Miami 96-99 Orlando
Jason Richardson hitnaði í leiknum og setti niður 6 af 8 þristum og lauk leik með 24 stig og 3 fráköst. Dwight Howard bætti við 14 stigum, 18 fráköstum, 5 stoðsendingum og 5 stolnum boltum í liði Orlando. Hjá Miami var LeBron James stigahæstur með 29 stig, 6 fráköst og 4 stoðsendingar og Dwyane Wade bætti við 28 stigum og 5 stoðsendingum. Orlando unnu upp þegar mest lét 24 stiga forskot Miami en í síðari hálfleik jafnaði Orlando metin í 82-82 eftir 18-0 áhlaup. Heat áttu síðustu sóknina í stöðunni 96-99 og fengu tvær sterkar tilraunir úr þriggja stiga skotum til að jafna en skotin hjá Bosh og James vildu ekki niður og Orlando fögnuðu því sigri.
 
Utah 101-103 Denver
Ty Lawson var atkvæðamestur í liði Denver í nótt með 23 stig, 6 fráköst og 5 stoðsendingar. Hjá Utah kom C.J. Miles sprækur af bekknum með 22 stig og 6 fráköst. Andrei Kirilenko fékk óvæntan möguleika á því að jafna leikinn fyrir Utah um leið og leiktíminn rann út, hann bauð þess í stað upp á versta sniðskot sem náðst hefur á myndband (í lok myndbands).
 
Mynd/ Howard og félagar lögðu Miami í nótt.
 
Fréttir
- Auglýsing -