HomeFréttirÚrslit: Ísfirðingar fallnir í 1. deild

Úrslit: Ísfirðingar fallnir í 1. deild

 
Í kvöld lauk 20. umferðinni í Iceland Express deild karla þar sem staðfesting fékkst á því að KFÍ mun leika í 1. deild á næstu leiktíð en Ísfirðingar fengu skell í Keflavík. Þá lagði Stjarnan meistara Snæfells og Njarðvík vann að Ásvöllum.
Keflavík 123-87 KFÍ
Ísfirðingar eru fallnir í 1. deild og mættu í kvöld ofjörlum sínum úr Keflavík. Hjá heimamönnum var Thomas Sanders með 23 stig og 12 fráköst en hjá KFÍ var Nebojsa Knesevic með 26 stig.
 
Stjarnan 94-80 Snæfell
Renato Lindmets gerði 29 stig og tók 10 fráköst í liði Stjörnunnar og Justin Shouse bætti við 23 stigum og 13 stoðsendingum.
 
Haukar 72-80 Njarðvík
Semaj Inge var atkvæðamestur í liði Hauka með 21 stig, 5 fráköst og 6 stoðsendingar. Hjá Njarðvíkingum var Giordan Watson með 33 stig, 7 fráköst og 9 stoðsendingar en þessi öflugi leikmaður hefur nú gert 73 stig í tveimur deildarleikjum.
 
1. deild karla
 
FSu 104-88 Laugdælir
Valur Orri Valsson gerði 38 stig, tók 11 fráköst og gaf 7 stoðsendingar í liði FSu, ekki amalegt dagsverk á þeim bænum. Þá var gamla brýnið Björgvin Jóhannesson með 9 stig og 6 fráköst. Hjá Laugdælum var samkvæmt Live Stat ,,nafnlaus“ leikmaður með 30 stig en við fáum vonandi að vita síðar í kvöld hvaða spjátrungur var þar að verki.
 
Höttur 98-125 Þór Akureyri
Daniel Terrell gerði 37 stig í liði Hattar en Óðinn Ásgeirsson gerði 32 stig og tók 10 fráköst í liði Þórs Akureyrar.
 
Leiknir 74-82 Ármann
Sverrir Kári Karlsson gerði 24 stig og tók 18 fráköst í liði Ármanns en hjá Leikni var Helgi Davíð Ingason með 24 stig og 8 fráköst.
 
Þór Þorlákshöfn 85-79 Skallagrímur
Bræðurnir Þorsteinn og Baldur Ragnarssynir voru atkvæðamestir í sigurliði Þórs, báðir með 21 stig í leiknum en Baldur var auk þess með 9 fráköst og 7 stoðsendingar. Darrell Flake var stigahæstur hjá Sköllunum með 27 stig og 9 fráköst.
 
Valur 102-100 Breiðablik
Calvin Wooten gerði 36 stig í liði Vals en hjá Blikum var Nick Brady með 22 stig og Þorsteinn Gunnlaugsson gerði 17 stig og tók 18 fráköst.

Nánar síðar…

 
Fréttir
- Auglýsing -