Þrír leikir fóru fram í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik í kvöld og dró það helst til tíðinda að félagarnir Jakob Örn Sigurðarson og Hlynur Elías Bæringsson urðu deildarmeistarar með Sundsvall Dragons eftir 89-97 útisigur á 08 Stockholm HR.
Jakob var stigahæstur í sigurliði Sundsvall með 24 stig og 4 stoðsendingar og Hlynur bætti við 14 stigum og 5 fráköstum. Eftir sigurinn er Sundsvall á toppi deildarinnar með 54 stig, 8 stigum fyrir ofan LF Basket í 2. sætinu.
Þá urðu Helgi Már Magnússon og félagar í Uppsala Basket að lúta í parket á útivelli eftir 92-80 ósigur gegn LF Basket. Helgi lék í 10 mínútur í leiknum en náði ekki að skora.





