HomeFréttirGrænir höfðu betur á Ásvöllum

Grænir höfðu betur á Ásvöllum

Njarðvíkingar höfðu sigur á Ásvöllum í kvöld í leik sem var spennandi frá fyrstu mínútu. Jafnræði var með liðinum en Njarðvíkingar leiddu nær allan leikinn og gekk Haukaliðinu erfiðlega að komast fram úr gestunum og enduðu grænir með átta stiga sigri 72-80.
 
Lítið breyttist í töflunni annað en að Njarðvíkingar hafa nú tveggja stiga forskot á Hauka en liðin voru jöfn af stigum í 7. og 8. sæti deildarinnar.
 
Liðin byrjuðu bæði af miklum krafti og skiptust á að skora eða þangað til að Njarðvíkingar tóku forystuna. Leiddu þeir með sex stigum eftir fyrsta leikhluta og þessa forystu héldu þeir út nánast allan tímann. Lítið gerðist í leiknum annað en að liðin skiptust á að skora. Haukar unnu annan leikhluta með tveimur stigum og minnkuðu muninn í fjögur stig og Njarðvík leiddi 37-41 í hálfleik.
 
Í raun gerðist fátt annað en að Haukaliðið elti Njarðvíkurliðið allan leikinn og komst aldrei yfir. Þeir jöfnuðu leikinn í nokkur skipti en alltaf vantaði herslumuninn til að komast yfir. Lokamínútur leiksins hefðu getað orðið spennandi en Njarðvíkingar komu í veg fyrir það með því að nýta nær öll vítaskot sín en Haukar reyndu hvað þeir gátu til að brjóta á grænum og freista þess að stela sigri. Ekki gekk það upp þar sem að skot Haukamanna rötuðu ekki rétta leið og áfram settu Njarðvíkingar niður sín víi. Haukaliðið var með mjög svo lélega vítanýtingu en þeir klikkuðu úr 12 vítaskotum sem hefðu mögulega getað gert leikinn meira spennandi. Eins og fyrr segir unnu Njarðvíkingar átta stiga sigur og eru nú komnir langleiðina með öruggt sæti í úrslitakeppninni.
 
Hápunktar leiksins voru sennilegast hálofta leikar Semaj Inge en hann átti tvær magnaðar troðslur sem og eitt glæsilega varið skot sem að kætti þá áhorfendur sem að mættu á leikinn.
 
Stigahæstur í liði Njarðvíkinga var Giordan Watson sem átti frábæran leik fyrir Njarðvíkinga en kappinn skoraði 33 stig og gaf 9 stoðsendingar. Nenad Tomasevic var með 14 stig og 7 fráköst og Melzie Jonathan Moore var með 12 stig og 6 fráköst.
 
Hjá Haukum var Semaj Inge með 21 stig og 6 fráköst og Gerald Robinsson var með 13 stig og 14 fráköst.
MyndGiordan Watson lék vörn Hauka ansi grátt á tíðum í kvöld 
 
Fréttir
- Auglýsing -