HomeFréttirValsmenn sterkari á lokasprettinum

Valsmenn sterkari á lokasprettinum

 
Sævaldur Bjarnason mætti með lærisveina sína á gamalkunnar slóðir að Hlíðarenda í kvöld. Fyrri viðureign liðanna í vetur lauk með eins stigs dramatískum sigri Breiðabliks í 1. deild karla. Til að Valur kæmist upp fyrir Breiðablik í fjórða sæti deildarinnar urðu Valsmenn því að vinna leikinn með minnst tveim stigum.
Í fyrsta leikhluta leit ekki út fyrir að leikurinn yrði jafn. Erlendu leikmenn Vals, Calvin Wooten og Philip Perre ásamt Sigmari Egilssyni, fyrirliða Valsliðsins, og Björgvini Valentíussyni fóru á kostum og Valur leiddi með 40 stigum gegn 20 eftir leikhlutann. Nick Brady og Atli Örn Gunnarsson voru bestu menn Breiðabliks, en aðrir höfðu sig ekki mikið í frammi. Í öðrum leikhluta tókst Breiðabliki að minnka muninn, en Valur hafði þægilega 11 stiga forustu í hálfleik og voru búnir að skora 62 stig gegn 51 stigi Breiðabliks. Valsmenn voru með um 60% skotnýtingu í fyrri hálfleik. Frákastabaráttan var í jafnvægi, en stórleikur Calvins, sem var kominn með 25 stig gerði gæfumuninn fyrir Val.
 
Í seinni hálfleik skipti Sævaldur yfir í 3:2 svæðisvörn sem kom Valsmönnum í opna skjöldu. Skotnýtingin dalaði og Breiðabliksmenn tóku fleiri fráköst. Samt tókst Valsmönnum að auka muninn um tvö stig í þriðja leikhluta, en það má þakka auðveldum körfum eftir tapaða bolta hjá Breiðabliki.
 
Í fjórða leikhluta breyttist heldur betur gangur leiksins. 3:2 vörnin small saman hjá Blikum og Arnar Pétursson skipti um gír í sóknarleiknum. Hann skoraði nokkrar gullfallegar körfur með gegnumbrotum og setti niður þriggja stiga skot þegar mikið lá við. Þorsteinn Gunnlaugsson sem hafði hægt um sig hingað til reif hvert frákastið af öðru niður, bæði í sókn og vörn og skoraði mikilvægar körfur. Flæðandi sóknarleikur liðsins og mikil hreyfing leikmanna skilaði fallegum körfum. Blikar tóku 13 fleiri fráköst en Valur í síðari hálfleik. Það var greinilegt að þessi vanmetni þáttur í körfuknattleik skipti miklu máli í þessum leik.
 
Frá þriðju til sjöundu mínútu leikhlutans skoraði Breiðablik 11 stig í röð og þrátt fyrir tímabært leikhlé hjá Yngva Gunnlaugssyni, þjálfara Vals, héldu gestirnir áfram að saxa á forskotið og enduðu á að komast yfir í leiknum, 95-94. Valsmenn voru svo sterkari á lokasprettinum og mikilvægar körfur og stoðsending frá Herði Helga Hreiðarssyni og langþráður þristur frá Calvin skiluðu 102-100 sigri. Spennandi og skemmtilegur leikur sem gefur góð fyrirheit fyrir úrslitakeppni 1. deildar.
 
Heildarskor:
 
Valur: Calvin Wooten 36/5 fráköst/5 stolnir, Philip Perre 16/4 fráköst, Hörður Helgi Hreiðarsson 15/5 fráköst, Björgvin Rúnar Valentínusson 12/6 fráköst, Sigmar Egilsson 11/6 fráköst/9 stoðsendingar, Alexander Dungal 7/4 fráköst, Snorri Páll Sigurðsson 5, Pétur Þór Jakobsson 0, Hörður Nikulásson 0, Benedikt Blöndal 0, Birgir Björn Pétursson 0, Ragnar Skúlason 0.
 
Breiðablik: Nick Brady 22/5 stoðsendingar, Arnar Pétursson 18/6 fráköst, Þorsteinn Gunnlaugsson 17/18 fráköst, Steinar Arason 13, Atli Örn Gunnarsson 12/9 fráköst/6 stoðsendingar/3 varin skot, Snorri Hrafnkelsson 10/4 fráköst, Aðalsteinn Pálsson 3, Ágúst Orrason 2, Rúnar Pálmarsson 2, Hákon Bjarnason 1, Ívar Örn Hákonarson 0, Hraunar Karl Guðmundsson 0.
 
Dómarar: Davíð Kr. Hreiðarsson, Steinar Orri Sigurðsson
 
Mynd og umfjöllun: Torfi Magnússon
Fréttir
- Auglýsing -