HomeFréttirÍR slátraði Reykjavíkurrimmunni

ÍR slátraði Reykjavíkurrimmunni

 
ÍR tók KR í kennslustund í Seljaskóla í kvöld. Lokatölur 124-96 ÍR í vil en engu öðru liði hefur þetta tímabilið tekist að skora jafn mikið á KR. Þetta var annar leikurinn í röð sem KR-ingar fá á sig meira en 100 stig en að sama skapi vann ÍR sinn fimmta heimaleik í röð. Óhætt er að segja að ÍR líti vel út um þessar mundir en gamla stórveldið hreinlega slátraði Reykjavíkurrimmunni. Með tapi KR í kvöld og sigri Snæfells í Hólminum urðu Snæfellingar deildarmeistarar.
Eftir þrist frá Nemanja Sovic leiddu ÍR-ingar 11-2 og skömmu síðar 13-4 og 17 stig alls komin í pottinn og öll tengdust þau ÍR á einn eða annan hátt þar sem Hreggviður Magnússon gerði fjögur fyrstu stig KR í leiknum. Heimamenn í Seljaskóla mættu grimmir til leiks og KR-ingar komust hvorki lönd né strönd gegn sterkri vörninni. Helsta vopn vesturbæinga, hraði þeirra með Marcus í broddi fylkingar leiðandi hraðaupphlaupin voru ekki að ganga upp, slæmar sendingar trekk í trekk sem ÍR komst inn í.
 
Eftir rúmlega sex mínútna leik fór Sveinbjörn Claessen af velli hjá ÍR með tvær villur og lék ekki meir í fyrri hálfleik. Brynjar Þór Björnsson klóraði í bakkann fyrir KR með þrist, 22-15. Það lifnaði aðeins yfir KR en ÍR leiddu 30-22 að loknum fyrsta leikhluta og áður en hann var úti fékk Pavel Ermolinskij dæmt á sig tæknivít eftir að hann fékk einnig dæmda á sig sóknarvillu, tæknivítið átti eftir að ásækja hann í síðari hálfleik.
 
Nemanja Sovic setti upp smá sýningu í öðrum leikhluta og ÍR komst síðar í 50-29 eftir troðslu úr hraðaupphlaupi hjá Kelly Beidler. KR tók leikhlé fyrir vikið og reyndu að fóta sig gegn gríðarlega einbeittum heimamönnum. Níels Dungal átti flotta spretti hjá ÍR, sérstaklega í fyrri hálfleik, og barðist af miklum krafti í kvöld þó hann hafi ekki sett flest stig á töfluna þá var hann engu að síður einn besti maður vallarins.
 
ÍR-ingar leiddu 64-41 í hálfleik og gerðu því 34 stig í öðrum leikhluta, 30 í þeim fyrri og vörn KR gersamlega heillum horfin. Nemanja Sovic var með 17 stig hjá ÍR í hálfleik, James Bartolotta 16 og Kelly Beidler 11. Hjá KR voru Finnur Atli Magnússon og Marcus Walker báðir með 10 stig.
 
Í upphafi þriðja leikhluta var taktík KR greinilega að setja Bartolotta á ís, Brynjar Þór Björnsson hékk á honum eins og skugginn en öll áform KR-inga fóru út um þúfur á fyrstu mínútum síðari hálfleiks. Finnur Atli Magnússon fékk villur með skömmu millibili og varð frá að hverfa með fimm villur, skömmu síðar fékk Pavel Ermolinskij sitt annað tæknivíti í leiknum og mátti því yfirgefa leikvöllinn. Þriðji leikhluti fór 28-28 en staðan að honum loknum 92-69 og því nokkuð ljóst hver færi með sigur af hólmi.
 
Það var svo ekki fyrr en í andarslitrum leiksins sem Gunnar Sverrisson setti inn varamannabekkinn sinn sem sigldi glæsilegum ÍR-sigri í höfn, 124-96 og ljóst að ÍR-ingar eru í fantaformi um þessar mundir og enginn öfundsverður af því að eiga leið um Hellinn í Seljaskóla.
 
James Bartolotta var stigahæstur hjá ÍR í kvöld með 33 stig og 6 stoðsendingar og hr. ÍR, Eiríkur Önundarson, bætti við 24 stigum en ÍR liðið heilt á litið lék afspyrnu vel í kvöld og erfitt að týna til einhverja sem stóðu öðrum fremur. Marcus Walker barðist allan tímann í liði KR og lauk leik með 31 stig, 7 fráköst og 6 stoðsendingar og Brynjar Þór Björnsson gerði 15 stig og tók 8 fráköst.
 
 
Heildarskor:
 
ÍR: James Bartolotta 33/4 fráköst/6 stoðsendingar, Eiríkur Önundarson 24, Kelly Biedler 22/12 fráköst, Nemanja Sovic 16/4 fráköst, Hjalti Friðriksson 12, Níels Dungal 11/6 fráköst, Sveinbjörn Claesson 4, Vilhjálmur Theodór Jónsson 2, Tómas Aron Viggóson 0, Þorgrímur Emilsson 0, Davíð Þór Fritzson 0, Ásgeir Örn Hlöðversson 0.
 
KR: Marcus Walker 31/7 fráköst/6 stoðsendingar, Brynjar Þór Björnsson 15/8 fráköst, Finnur Atli Magnússon 12, Hreggviður Magnússon 8/4 fráköst, Ólafur Már Ægisson 6, Jón Orri Kristjánsson 6/5 fráköst, Pavel Ermolinskij 5/5 fráköst, Skarphéðinn Freyr Ingason 5, Ágúst Angantýsson 4/6 fráköst, Martin Hermannsson 3, Páll Fannar Helgason 1.
 
Dómarar leiksins: Sigmundur Már Herbertsson og Kristinn Óskarsson
 
Byrjunarlið leiksins:

ÍR:
James Bartolotta, Níels Dungal, Sveinbjörn Claessen, Kelly Beidler og Nemanja Sovic.
KR: Pavel Ermolinskij, Marcus Walker, Brynjar Þór Björnsson, Hreggviður Magnússon og Finnur Magnússon.
 
Punktar:
-ÍR lék án Kristins Jónassonar í kvöld og KR lék án Fannars Ólafssonar.
-Sigur ÍR í kvöld var fimmti heimasigur liðsins og að sama skapi bundu þeir enda á fimm leikja útisigurgöngu KR í deildinni.
-124 stig eru það mesta sem KR hefur fengið á sig í vetur og það mesta sem ÍR hefur skorað í vetur í einum leik.
 
Umfjöllun og myndir: Jón Björn Ólafsson – [email protected]  
Fréttir
- Auglýsing -