Níu leikir fóru fram í NBA deildinni í gærkvöldi og í nótt. Chicago Bulls lögðu Miami Heat í þriðja sinn á tímabilinu og LA Lakers gerðu góða ferð til San Antonio og lögðu heimamenn í Spurs.
Miami 86-87 Chicago
Derrick Rose gerði 27 stig og gaf 5 stoðsendingar í liði Bulls en hjá Heat var LeBron James með 26 stig, 8 fráköst og 6 stoðsendingar. Eins og í síðasta leik sínum átti Heat möguleika á því að hrifsa til sín sigurinn, LeBron keyrði upp að körfunni og henti frá sér vondu skoti, Dwyane Wade náði frákastinu á endalínunni og fór upp í nokkuð erfitt stökkskot sem geigaði og Bulls fögnuðu sigri.
San Antonio 83-99 Lakers
Kobe Bryant var stigahæstur hjá Lakers með 26 stig, 7 fráköst og 5 stoðsendingar. Hjá Spurs var Gary Neal af bekknum með 15 stig og 7 fráköst en byrjunarlið Spurs var hryllilegt í leiknum, Duncan með 2 stig, Manu 6 og Tony Parker 14, þrennan fræga gerði samtals 22 stig í leiknum sem er líklega það slakasta sem þessir kappar hafa kokkað saman í deildinni.
Dallas 103-104 Memphis
Zach Randolph gerði 27 stig og tók 9 fráköst í liði Memphis en hjá Dallas var Dirk Nowitzki með 23 stig og 5 fráköst í liði Dallas. Zach Randolph gerði út um leikinn fyrir Memphis með körfu þegar 0,3 sekúndur voru til leiksloka, hann fékk boltann við endalínuna og svellkaldur kláraði hann dæmið en Dirk Nowitzki hafði í sókninni áður komið Dallas í 103-101 með stökkskoti uppi á lykli þegar 3 sekúndur voru til leiksloka.
Önnur úrslit næturinnar:
Detroit 113-102 Washington
Philadelphia 125-117 Golden State
Atlanta 79-92 New York
Cleveland 81-96 New Orleans
Oklahoma 122-118 Phoenix
Milwaukee 83-89 Boston
Mynd/ Rose og félagar í Bulls hafa tak á Miami Heat.





