Það var hörkuleikur sem boðið var upp á í Röstinni í kvöld þegar Grindavík og Fjölnir áttust við. Það voru Fjölnismenn sem byrjuðu betur og eftir um 5 mínútu leik var staðan orðin 5-15 fyrir Fjölni og Grindvíkingar farnir að ókyrrast í stúkunni. Brandon Brown byrjaði vel og skoraði 8 af þessum 15 stigum Fjölnis. En Grindvíkingar létu slæma byrjun ekki slá sig út af laginu og síðustu 5 mínútur 1.leikhluta unnu Grindvíkingar 18-5 og Mladen Soskic skoraði 9 af þessum 18 stigum með þremur þriggja stiga körfum og staðan því orðin 23-20 í lok fyrsta leikhluta. Annar leikhluti var jafn og skemmtilegur, mikil barátta og skemmtileg tilþrif, margar tilraunir til að troða og varin skot og í lok leikhlutans var staðan 47-44 fyrir Grindavík.
Þriðji leikhluti byrjaði eins og sá fyrri endaði. Mikill hraði og hiti í mönnum, skemmtileg tilþrif og jafn leikur. En um miðjan leikhlutann setti Ólafur Ólafsson niður tvo risa þrista og breytti stöðunni úr 59-53 í 65-53 en stuttu áður hafði hann einnig framkvæmt glæsilega troðslu sem kveikti í bæði leikmönnum og áhorfendum. Þessar tvær körfur hans og troðsla fengu aðra leikmenn til að sýna sparihliðarnar og Brandon Brown tróð næstur með tilþrifum yfir Grindavíkurvörnina en Grindvíkingar svöruðu um hæl með troðslu frá Ryan Pattinella. Virklega fjörugur leikur með nóg af glæsilegum tilþrifum. Grindvíkingar voru þó aðeins betri á þessum tímapunkti og í lok 3ja leikhluta var staðan 75-60 og leit út fyrir að Grindavík myndi klára leikinn auðveldlega.
Fjölnismenn neituðu að gefast upp og með mikilli baráttu og brjálaðri vörn unnu þeir sig aftur inn í leikinn og á þessum tímapunkti átti Brandon Brown glæsileg tilþrif er hann varði troðslu frá Ryan í Grindavík. Með mikilli baráttu tókst Fjölni að jafna leikinn 86-86 er Brandon Brown skoraði úr víti. Í næstu sókn hjá Grindavík skoraði Mladen Soskic risaþrist fyrir Grindavík og staðan 89-86 og aðeins mínúta eftir. Fjölnismenn ná ekki að skora og brjóta á Ryan Pattinella í skoti sem er ekki besta vítaskyttan í deildinni og klikkar á báðum vítunum. Fjölnir er því með boltann og Magni skorar 2 stig og minnkar muninn í 89-88 og aðeins 20 sekúndur eftir af leiknum og Grindavík með boltann.
Tómas Tómasson hjá Fjölni tekst að stela boltanum af Ólafi hjá Grindavík og keyrir upp völlinn en klikkar á skotinu en Brandon nær frákastinu og skorar og staðan þá 89-90 fyrir Fjölni og aðeins nokkrar sekúndur eftir af leiknum. Grindvíkingar keyra upp völlinn og Ólafur Ólafsson fær boltann fyrir utan þriggja stigalínuna og reynir erfitt þriggja stiga skot sem geigar en Tómas brýtur á Ólafi sem fær því þrjú vítaskot. Ólafur var öruggur á línunni og setti fyrstu tvö vítin ofan í en klikkar á því þriðja og Brandon reynir erfitt skot frá miðju fyrir Fjölni en klikkar. Grindavík vann því 91-90 sigur og voru heppnir að Fjölnir skyldi ekki hafa náð að stela stigunum í lok leiksins. En virkilega skemmtilegur og fjörugur leikur sem var gaman að horfa á, ef undirrituð hefur talið rétt voru a.m.k. 6 troðslur í leiknum, glæsileg blokk og mikið um stórar þriggjastiga körfur og það er vonandi að úrslitakeppnin verði eitthvað lík þessum leik.
Bestir í liði Grindavíkur voru Mladen Soskic sem var með 28 stig og þar af 7/9 í þriggja, og Ólafur Ólafsson með 20 stig og 7 fráköst og 4/4 í þriggja. Ryan Pettinella barðist vel en var óheppin með skotin en skoraði 11 stig og var með 15 fráköst auk þess sem Helgi Björn Einarsson nýtti sínar mínútur.
Hjá Fjölni var Brandon Brown með 29 stig og 13 fráköst og mörg skemmtileg tilþrif og Ægir Þór Steinarsson með 19 stig og 13 stoðsendinga en Ægir er virkilega skemmtilegur leikmaður gaman er að fylgjast með inn á vellinum. Ingvaldur Magni Hafsteinsson skoraði einnig 17 stig, tók 8 fráköst og stal 5 boltum.
Heildarskor:
Grindavík: Mladen Soskic 28/6 fráköst, Ólafur Ólafsson 20/7 fráköst, Nick Bradford 14/5 fráköst, Ryan Pettinella 11/15 fráköst, Páll Axel Vilbergsson 7/5 fráköst/5 stoðsendingar, Helgi Björn Einarsson 6/4 fráköst, Ómar Örn Sævarsson 5/7 fráköst, Helgi Jónas Guðfinnsson 0/4 fráköst, Björn Steinar Brynjólfsson 0, Egill Birgisson 0, Þorsteinn Finnbogason 0.
Fjölnir: Brandon Brown 29/13 fráköst/4 varin skot, Ægir Þór Steinarsson 19/6 fráköst/13 stoðsendingar, Ingvaldur Magni Hafsteinsson 17/8 fráköst/5 stolnir, Jón Sverrisson 10/6 fráköst, Tómas Heiðar Tómasson 8/5 stoðsendingar, Arnþór Freyr Guðmundsson 5, Hjalti Vilhjálmsson 2, Leifur Arason 0, Sindri Kárason 0, Sigurður Þórarinsson 0, Einar Þórmundsson 0, Elvar Sigurðsson 0.
Dómarar: Kristinn Óskarsson, Davíð Tómas Tómasson
Umfjöllun: Bryndís Gunnlaugsdóttir





