HomeFréttirÖrvar: Viljum ekki enda tímabilið 10. mars!

Örvar: Viljum ekki enda tímabilið 10. mars!

 
Fjölnismenn lentu í miklum spennuslag í gærkvöldi gegn Grindavík í Iceland Express deild karla þar sem Grindvíkingar reyndust sterkari á endasprettinum og nú er svo búið að ekkert annað en sigur dugir fyrir Grafarvogspilta til þess að eiga möguleika á sæti í úrslitakeppninni. Við tókum stuttan púls á Örvari Kristjánssyni þjálfara Fjölnis.
Þetta féll ekki alveg með ykkur í gær?
Nei, þetta var grátlegt í lokin og lukkudísirnar voru ekki á okkar bandi en Grindvíkingar eru þó vel að þessum sigri komnir. Við grófum okkur í djúpa holu í 3.leikhluta, lendum 17 stigum undir en með frábærri baráttu þá komumst við aftur inn í leikinn. Vorum svo hársbreidd frá því að taka þetta en Grindvíkingar náðu að klára þetta í lokin með seiglunni. Ég er mjög ósáttur með tapið en eins og oft áður er ég gríðarlega stoltur af karakternum í mínum mönnum sem aldrei gefast upp. Annars var þessi leikur frábær skemmtun, stórglæsileg tilþrif á báða bóga og ég get ekki annað en hrósað Ólafi Ólafssyni fyrir frábæran leik hjá Grindvíkingum, þar er á ferð einn allra skemmtilegasti leikmaður deildarinnar. Einnig eiga dómarar leiksins hrós skilið, dæmdu virkilega vel hraðan og erfiðan leik.
 
Þrátt fyrir naumt tap þá er ennþá möguleiki á 8.sætinu. Hverja teluru möguleikana á því?
Við þurfum fyrst og fremst að einblína á okkar leik, verðum að sigra hið öfluga lið ÍR heima á fimmtudaginn. Ég sá ÍR liðið ganga frá meistaraefnum KR á sunnudaginn og þeir eru að spila glimrandi bolta um þessar mundir.
Þennan leik ætlum við að vinna og vonandi verður áfram sama stemmningin uppi í Dalhúsum eins og búið er að vera. Veit það með vissu að að KFÍ menn mæta fullir sjálfstrausts gegn Haukum og ætla að kveðja deildina með stæl svo það verður spenna í þessari baráttu allt til enda. Hvað sem verður þá ætlum við sem fyrr að gera allt til þess að komast í úrslitakeppnina enda viljum við alls ekki enda tímabilið 10.mars!
 
Fréttir
- Auglýsing -