Næstu tvö árin mun Grindavíkurbær styrkja Ungmennafélag Grindavíkur um 18 milljónir króna á ári! Samningnu er ætlað að efla samstarf bæjaryfirvalda í Grindavík og UMFG um eflingu íþróttastarfs í Grindavík með megináherslu á öflugt íþrótta-, forvarna- og tómstundastarf fyrir börn og ungmenni á aldrinum 6 – 16 ára. Þetta kemur fram á www.umfg.is
Allar deildir innan UMFG hafa komið sér saman um að innheimta aðeins eitt æfingagjald, 20.000 kr., pr. barn á ári óháð fjölda íþróttagreina sem barnið stundar.
Mynd/ Þorsteinn G. Kristjánsson: Í hálfleik í leik Grindavíkur og Fjölnis í Iceland Express deild karla á mánudagskvöld var undirritaður samningur á milli Grindavíkurbæjar og aðalstjórnar UMFG um eflingu íþróttastarfs í Grindavík.





