Í kvöld fór fram lokaumferðin í Iceland Express deild kvenna þar sem Fjölniskonur fengu skell á heimavelli gegn Grindavík í botnslag B-riðils deildarinnar og féllu fyrir vikið í 1. deild kvenna þaðan sem þær komu fyrir þessa leiktíð.
Úrslit lokaumferðarinnar:
Keflavík 72-91 Hamar
Slavica Dimovska gerði 21 stig og tók 5 fráköst í sigurliði Hamars en hjá Keflavík var Jaquline Adamshick með 22 stig og 15 fráköst.
Haukar 73–74 KR
Margrét Rósa Hálfdánardóttir gerði 18 stig og tók 6 fráköst í liði Hauka. Hjá KR var Chazny Morris með 33 stig og 11 fráköst.
Njarðvík 75-68 Snæfell
Dita Liepkalne gerði 21 stig og tók 9 fráköst í liði Njarðvíkinga en hjá Snæfell var reynsluboltinn Alda Leif Jónsdóttir stigahæst með 15 stig, 4 fráköst og 3 stoðsendingar.
Fjölnir 66-94 Grindavík
Natasha Harris var með 34 stig og 12 fráköst í liði Fjölnis en hjá Grindvíkingum var Janese Banks með 32 stig og 6 fráköst.
Endanleg röðun í deildinni:
A-riðill
Hamar
Keflavík
KR
Haukar
B-riðill
Njarðvík
Snæfell
Grindavík
Fjölnir
Fyrsta umferð úrslitakeppninnar hefst á laugardag og lítur svona út:
Hamar og Keflavík sitja hjá.
KR-Snæfell
Haukar-Njarðvík
Grindavík – leiktíð lokið
Fjölnir – leiktíð lokið/ leika í 1. deild á næstu leiktíð
Nánar síðar…





