Deildarmeistarar Hamars skelltu Keflavík í Toyota-höllinni í kvöld 72-91 í lokaumferð Iceland Express deildar kvenna. Þessi tvö lið sitja hjá í fyrstu umferð úrslitakeppninnar sem hefst um helgina. Fyrir leikinn í kvöld var staða liðanna ljós og því úrslit leiksins þýðingarlaus fyrir stöðuna í deildinni. Slavica Dimovska var atkvæðamest í liði Hamars í kvöld með 21 stig og 5 fráköst en Jacquline Adamshick gerði 22 stig og tók 15 fráköst í liði Keflavíkur.
Sóknarleikurinn var báðum liðum ofarlega í huga í upphafi leiks og leiddi Hamar 20-27 að loknum fyrsta leikhluta. Hamarskonur komu mun ákveðnari til leiks í öðrum leikhluta á meðan lítið gekk upp hjá Keflavík sem voru bara búnar að skora 4 stig þegar að 2.38mín. voru eftir af leikhlutanum. Keflavík reyndi fyrir sér í 3-2 svæðisvörn en Hamarskonur hittu vel og settu niður 14 þrista í leiknum. Í hálfleik var Kristrún Sigurjónsdóttir með 11 stig í liði Hamars og Jacquline Adamshick með 10 hjá Keflavík og staðan 29-48 Hamri í vil.
Keflavík virtust aðeins sprækari í upphafi seinni hálfleiks en náðu þó aldrei að komast almennilega inn í leikinn og hélst munurinn í 20 stigum út allan leikinn með lokatölunum 72-91 Hamri í vil. Pálína Gunnlaugsdóttir var sprækust hjá Keflavík með 19 stig, 8 fráköst og 4 stoðsendingar.
Heildarskor:
Keflavík: Jacquline Adamshick 22/15 fráköst, Pálína Gunnlaugsdóttir 19/8 fráköst, Marina Caran 12/6 fráköst, Hrund Jóhannsdóttir 6/8 fráköst, Ingibjörg Jakobsdóttir 5, Bryndís Guðmundsdóttir 4/4 fráköst, Árný Sif Kristínardóttir 2, Marín Rós Karlsdóttir 2, Lovísa Falsdóttir 0, Hrönn Þorgrímsdóttir 0, Sigrún Albertsdóttir 0, Telma Lind Ásgeirsdóttir 0.
Hamar: Slavica Dimovska 21/5 fráköst, Kristrún Sigurjónsdóttir 19/6 fráköst, Íris Ásgeirsdóttir 16/5 fráköst, Fanney Lind Guðmundsdóttir 14, Jaleesa Butler 12/15 fráköst/5 stoðsendingar, Guðbjörg Sverrisdóttir 7, Adda María Óttarsdóttir 2, Rannveig Reynisdóttir 0, Regína Ösp Guðmundsdóttir 0, Jenný Harðardóttir 0, Bylgja Sif Jónsdóttir 0, Þórunn Bjarnadóttir 0/5 fráköst.
Dómarar: Rögnvaldur Hreiðarsson, Davíð Tómas Tómasson
Ljósmynd/ Víkurfréttir – [email protected] – Slavica Dimovska gerði 21 stig fyrir Hamar í kvöld.





