Það var sannkallaður háspennuleikur í Ljónagryfjunni í kvöld þegar heimakonur tóku á móti stelpunum hans Inga frá Stykkishólmi. En fyrir leikinn í kvöld höfðu Njarðvíkurkonur 2 stiga forskot á Snæfell í B riðli Iceland Express deildar kvenna.
Það var engin önnur en Julia Demirer sem að skoraði fyrstu stig leiksins í kvöld fyrir Njarðvíkinga, en hún átti mjög góðan leik og var með 9 stig í fyrsta leikhluta. Fyrri hálfleikur var mjög jafn og skiptust liðin á forrystu, sem aldrei varð þó meiri en 3 stig.
Annar leikhluti var jafn og spennandi einsog sá fyrri þar sem að leikmenn liðanna gáfu ekkert eftir og sýndu flotta takta á köflum og var þónokkuð um 3ja stiga körfur. Staðan í hálfleik var 36-37 þar sem að Sara Mjöll Mangúsdóttir átti flautukörfu í liði Snæfells.
Sama barátta og jafnræði var með liðunum í seinni hálfleik, en það voru þó heimakonur sem að voru ávallt skrefinu á undan og lönduðu sigri að lokum 75-68 þar sem að allir leikmenn Njarðvíkurliðsins áttu flottan leik. Hjá Snæfell var það "gamla brýnið" Alda Leif Jónsdóttir sem sýndi fína takta og átti skínandi leik með 15 stig og 22 framlagsstig. Monique Martin hefur átt betri leiki og skoraði einungis 14 stig sem að telst ekki mikið hjá þessum frábæra leikmanni.
Það verða því Haukar og Njarðvík sem mætast í úrslitakeppninni og Snæfell og KR.
Byrjunarlið Njarðvíkur; Dita, Shayla, Ólöf Helga, Árnína Lena
Byrjunarlið Snæfells; Monique, Helga Hjördís, Berglind, Alda Leif, Laura
Heildarskor:
Njarðvík : Dita Liepkalne 21/9 fráköst, Julia Demirer 19/13 fráköst, Shayla Fields 19, Ólöf Helga Pálsdóttir 8/5 fráköst, Árnína Lena Rúnarsdóttir 5, Eyrún Líf Sigurðardóttir 2, Ína María Einarsdóttir 1, Ásdís Vala Freysdóttir 0, Emelía Ósk Grétarsdóttir 0, Auður R. Jónsdóttir 0, Erna Hákonardóttir 0, Anna María Ævarsdóttir 0.
Snæfell : Alda Leif Jónsdóttir 15/4 fráköst, Monique Martin 14/9 fráköst/5 stoðsendingar/5 stolnir, Laura Audere 13/5 fráköst, Berglind Gunnarsdóttir 12/4 fráköst, Björg Guðrún Einarsdóttir 6, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 4/5 fráköst, Sara Mjöll Magnúsdóttir 2, Hildur Björg Kjartansdóttir 2/5 fráköst, Sunna Rós Arnarsdóttir 0, Aníta Sæþórsdóttir 0, Ellen Alfa Högnadóttir 0.
Dómarar: Jón Guðmundsson, Björgvin Rúnarsson
Mynd/Úr safni: Dita Liepkalne var stigahæst í Njarðvíkurliðinu í kvöld með 21 stig og 9 fráköst.
Umfjöllun: GÓS





